Búum að reynslu og þekkingu sem nýtist segir ráðherra

Ísland er eitt stofnríkja FAO sem er leiðandi alþjóðastofnun á sviði matvælaöryggis, landbúnaðar og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. 

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, og Dr. QU Dongyu, forstjóri FAO.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, og Dr. QU Dongyu, forstjóri FAO, handsala samkomulagið að lokinni undirskrift í Safnahúsinu í dag. Mynd/Utanríkisráðuneytið

Íslensk stjórnvöld og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að samningnum sé ætlað er að efla samstarf Íslands og stofnunarinnar.

Undirritun fór fram í Safnahúsinu í gær, miðvikudaginn 24. september, en undir samninginn skrifuðu Dr. QU Dongyu forstjóri FAO, sem er í stuttri heimsókn á Íslandi ásamt sendinefnd, og Hannu Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem stödd er á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. 

Fram kemur að Ísland sé eitt stofnríkja FAO sem sé leiðandi alþjóðastofnun á sviði matvælaöryggis, landbúnaðar og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. 

Haft er eftir atvinnuvegaráðherra að heimsóknin undirstriki mikilvægi virkrar þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi og hvernig Ísland geti miðlað góðri reynslu af sjálfbærri matvælaframleiðslu og vernd náttúruauðlinda öðrum þjóðum til hagsbóta.

„Þó við séum lítil þjóð þá getur reynsla okkar og þekking haft mikið að segja fyrir ríki heims og þá ekki síst er kemur að jafnréttismálum. Þá er sérlega ánægjulegt að efla tengslin við FAO á 80 ára afmælisári Sameinuðu þjóðanna og stofnunarinnar,“ segir Hanna Katrín.

Á meðan dvöl Dr. QU stendur á Íslandi fundar hann með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Þá er hann sagður ætla að kynna sér hvernig íslensk stjórnvöld, stofnanir og fyrirtæki vinna að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, til að mynda á sviði fiskveiða, jarðvarma og nýsköpunar.

„Forstjóri FAO hyggst jafnframt heimsækja fjölbreytta flóru fyrirtækja og stofnana á Íslandi sem tengjast sjávarútvegi, nýsköpun og grænni orku, og kynna sér hvernig vistvænar lausnir styrkja samkeppnishæfni og sjálfbærni.“ 

Þá kemur fram að Dr. QU, sem er kínverskur, hafi tekið við embætti forstjóra FAO árið 2019 og verið endurkjörinn 2023.

„Hann er menntaður grasafræðingur og líffræðingur með doktorspróf í grasafræði frá Wageningen háskólanum í Hollandi. Hann hefur víðtæka reynslu af landbúnaðarþróun og matvælaöryggi, bæði sem vísindamaður og sem háttsettur embættismaður í kínverska landbúnaðarráðuneytinu.“