Ferðaþjónusta hélt áfram að gegna lykilhlutverki í hagkerfinu árið 2024 og nam 8,7 prósentum af vergri landsframleiðslu, samanborið við 8,2 prósent árið 2023, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga.
Í nýrri samantekt Hagstofu Íslands á Ferðaþjónustureikningum 2024 kemur fram að gistiþjónusta hafi enn og aftur verið í fararbroddi í greininni og numið um 2,6 prósentum af vergri landsframleiðslu.
„Þrátt fyrir aukningu í hlut ferðaþjónustunnar í vergri landsframleiðslu hefur framlag greinarinnar til hagvaxtar dregist saman frá fyrra ári,“ segir þó í samantekt Hagstofunnar.
Framlag ferðaþjónustu til hagvaxtar mælist nú -0,4 prósent.
Ein af hverjum tíu vinnustundum
„Áætlað er að um 31,8 milljón vinnustunda árið 2024 megi rekja með beinum hætti til ferðaþjónustu, sem jafngildir um 9,9 prósentum heildarvinnustunda hér á landi það árið. Til samanburðar var þetta hlutfall um 10,1 prósent árið 2023.“
Gistiþjónusta er sem áður sögð hafa vegið þyngst í fjölda vinnustunda og var hlutur hennar í heildarvinnustundum um 3,2 prósent.

Heildarneysla ferðamanna jókst
Hagstofan segir að á síðasta ári hafi heildarneysla ferðamanna hér á landi, jafnt erlendra sem innlendra, numið tæpum 870 milljörðum króna og aukist um 6,4 prósent frá fyrra ári.
„Útgjöld ferðamanna, það er neysla að frádreginni reiknaðri húsaleigu og útgjöldum vinnuveitenda, námu rúmlega 840 milljörðum króna.“
Það er aukning um 7,9 prósent milli ára. Mæld á föstu verðlagi jukust útgjöldin hins vegar bara um 2,8 prósent.
„og höfðu verðlagshækkanir því veruleg áhrif á vöxt útgjalda á verðlagi hvers árs.“
Á föstu verðlagi dragast útgjöld erlendra ferðamanna saman
Útgjöld erlendra ferðamanna námu tæplega 519 milljörðum króna árið 2024 og jukust því um 4,2 prósent á milli ára, samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Þyngst hafi gistiþjónusta vegið eða um 26 prósent.
9,5 prósenta vöxtur er sagður hafa verið í þeim útgjaldalið hjá erlendum ferðamönnum frá fyrra ári.
„Aðrir veigamiklir liðir á árinu voru veitingaþjónusta og farþegaflutningar með flugi sem vógu samanlagt um 29 prósent en drógust saman um 1,4 prósent og 3,6 prósent frá fyrra ári.“
Á föstu verðlagi eru útgjöld erlendra ferðamanna sögð hafa dregist saman frá fyrra ári um sem nem 0,5 prósentum.
Neikvætt framlag til hagvaxtar
„Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga dróst vinnsluvirði ferðaþjónustunnar saman um 1 prósent árið 2024 samanborið við fyrra ár. Á föstu verðlagi var samdrátturinn heldur meiri eða um 6,3 prósent.“
Hagstofan segir að samdrátt í vinnsluvirði á föstu verðlagi megi að verulegu leyti rekja til samdráttar í gistiþjónustu og farþegaflutningum með flugi, en samanlagt framlag þessara liða til ársbreytingarinnar í vinnsluvirði ferðaþjónustunnar hafi verið neikvætt um fjögur prósent.
Þó er sleginn sá varnagli að niðurstöðurnar séu háðar bráðabirgðamati framleiðsluuppgjörs þjóðhagsreikninga á vinnsluvirði atvinnugreina árið 2024 og geti því breyst við næstu birtingu framleiðsluuppgjörsins.
Frekari greiningu er að finna í samantekt Hagstofunnar á Ferðaþjónustureikningum 2024.