Vélknúin ökutæki fá aftur að aka um Vonarskarð

Breyttar reglur varðandi umferð um Vonarskarð gilda í tilraunaskyni í fimm ár.

Umferð vélknúinna ökutækja verður aftur heimiluð um Vonarskarð, eftir að hafa verið bönnuð í 12 ár. Fram kemur á vef Vatnajökulsþjóðgarðs að svæðisstjórn þjóðgarðsins hafi samþykkti breytingatillögu þess efnis.

Heimila á vélknúna umferð og hjólreiðar í Vonarskarði frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært.

„Breytingin gildir í tilraunaskyni til fimm ára og fylgir henni ítarleg vöktunaráætlun. Umferð um Vonarskarð verður, eftir sem áður, heimil í samræmi við lög um náttúruvernd, á frosinni og snævi þakinni jörð ef frá eru skilin jarðhitasvæðin,“ segir á vef þjóðgarðsins.

Rifjað er upp að þegar stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs var samþykkt árið 2013 hafi verið lokað fyrir umferð í gegnum Vonarskarð og svæðið skilgreint sem göngusvæði.

Ákvörðunin var umdeild og kemur fram í umfjöllun þjóðgarðsins að síðan þá hafi verið tekist á um lokun fyrir umferð reiðhjóla og bifreiða. Á fundi stjórnar í nóvember 2024 hafi svo verið tekin ákvörðun um að hefja breytingaferli í tilraunaskyni.

„Með þessari ákvörðun er stigið mikilvægt skref í átt að málamiðlun sem sameinar ólík sjónarmið. Göngufólki er áfram tryggður friður yfir sumarið en haustopnun veitir fleiri hópum, þar á meðal öldruðum og hreyfihömluðum, aðgang að þessu víðáttumikla og einstaka svæði. Ákvörðunin er tímabundin og endurskoðanleg, byggð á vöktun og gögnum,“ segir Sigurjón Andrésson, formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs verður nú vísað til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til staðfestingar. Að því loknu segir að hafist verði handa við að stika leiðina og gera nauðsynlegar ráðstafanir fyrir opnun.

Hér má finna greinargerð Náttúrverndarstofnunar um Vonarskarð.