Samkeppniseftirlitið kallar eftir auknum stuðningi

Á síðasta ári tók Samkeppniseftirlitið til meðferðar yfir 120 stjórnsýslumál og lauk rannsókn á tæplega 70 þeirra.

Ársskýrsla Samkeppniseftirlitsins
Ársskýrsla Samkeppniseftirlitsins 2024.

Samkeppniseftirlitið (SKE) kallar eftir auknum stuðningi til að embættið fá betur staðið undir lögbundnum skyldum sínum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni ársskýrslu eftirlitsins fyrir 2024.

Sveinn Agnarsson, stjórnarformaður SKE, bendir í ávarpi sínu í skýrslunni á að á undanförnum árum hafi fjárheimildir SKE dregist saman að raungildi. Starfmenn SKE séu 23, eða álíka margir og gert var ráð fyrir fljótlega eftir stofnun embættisins 2005.

„Þessi þröngi stakkur hefur leitt til þess að Samkeppniseftirlitið hefur þurft að beita markvissri forgangsröðun verkefna og jafnvel fella niður mál eða hafna því að bregðast við kvörtunum fyrirtækja,“ segir hann.

Samkeppniseftirlitið geti ekki uppfyllt lögbundið hlutverk sitt nema það njóti nauðsynlegs stuðnings.

„Aðeins þannig verður hægt að ná markmiði stjórnvalda um sterkt samkeppniseftirlit,“ segir Sveinn.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, fjallar einnig um þörfina á auknum fjárheimildum í inngangi sínum og vitnar til niðurstaðana tveggja kannana sem eftirlitið lét gera um viðhorf til samkeppismála, annars vegar hjá almenningi og hins vegar stjórnendum.

Þær sýni skýrt hversu mikilvægt það sé að stjórnvöld hlúi að samkeppni og tryggi að Samkeppniseftirlitið búi yfir nægum fjárveitingum í starfsemi sinni.

„Það færi vel á því bæta úr þessu á afmælisárinu 2025, en 1. júlí verða 20 ár liðin frá stofnun Samkeppniseftirlitsins í núverandi mynd,“ segir hann.

Á vef SKE segir að í ársskýrslunni sé að finna upplýsingar um árið 2024 í tölum, áherslur eftirlitsins, einstakar rannsóknir, leiðbeiningar og tilmæli gagnvart hinu opinbera, ásamt úrlausnum áfrýjunarnefndar samkeppnismála og dómstóla á árinu.

Eins sé þar að finna yfirlit yfir úrlausnir dómstóla og stjórnvaldssektir frá setningu samkeppnislaga, ásamt mati á stöðu eftirlitsins og löggjafar um samkeppnismál, auk yfirlits yfir erlent samstarf og samstarf við lykilstofnanir hér á landi. Þá sé ársreikningur eftirlitsins birtur.

Fram kemur að á síðasta ári hafi Samkeppniseftirlitið tekið til meðferðar yfir 120 stjórnsýslumál og lokið rannsókn á tæplega 70 þeirra.

„Samhliða þessu sinnti stofnunin fjölmörgum öðrum verkefnum, þar á meðal um 40 umsagnarbeiðnum frá Alþingi og öðrum stjórnvöldum.“