Ekki komi til greina að brjóta upp Landsvirkjun

Samkeppnisbrot Landsvirkjunar rædd á Alþingi. Þingmaður Framsóknarflokksins segir þetta alvarleg tíðindi og geti haft áhrif á traust á raforkumarkaði.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra talar á fundi evrópskra orkumálaráðherra í Kaupmannahöfn fyrir helgi. Mynd/Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi á fimmtudaginn, 18. september, að stjórnvöld þyrftu að horfast í augu við það að í apríl síðastliðnum tilkynnti Eftirlitsstofnun EFTA að hún hefði hafið formlega rannsókn á því hvort Landsvirkjun hefði brotið samkeppnisreglur EES. Í ágúst hefði Samkeppniseftirlitið bætt við 1,4 milljarða króna sekt vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum. „Þetta eru alvarleg tíðindi sem geta haft áhrif á traust á raforkumarkaðnum og þar með á samkeppnishæfni landsins,“ sagði Ingibjörg.

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins

Spurði hún Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um viðbrögð hans við þessum niðurstöðum og hvernig hann ætli að tryggja að allir aðilar á raforkumarkaði sitji við sama borð. Jóhann Páll sagðist ætla að bíða með að aðhafast enda hafi Landsvirkjun gefið út að ákvörðuninni verði vísað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Ítrekaði ráðherrann að hann hefði aftur lagt fram frumvað um breytt regluverk sem miði að gagnsæi og skýrum leikreglum þegar kemur að viðskiptum með raforku. „Þetta er regluverk sem miðar líka að því að banna með skýrum hætti markaðsmisnotkun með raforku og innherjaviðskipti, ólögmæt innherjaviðskipti, með raforku,“ sagði Jóhann Páll. Það eigi að stuðla að heilbrigðri samkeppni á íslenskum raforkumarkaði.

Ríkisfyrirtækið starfi í samræmi við lög

Ingibjörgð nefndi þá að rannsókn ESA og ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sýndi að það væri mikilvægt að rýna reglulega í stöðu Landsvirkjunar með hliðsjón af stöðu allra annarra þátttakenda á raforkumarkaðnum og stjórnvöld bæru ábyrgð á því að ríkisfyrirtæki starfaði í samræmi við lög. „Mig langar að spyrja hæstvirtan ráðherra hvort hann telji ekki þörf á því að endurskoða lagalega umgjörð í tengslum við Landsvirkjun,“ spurði Ingibjörg.

Jóhann Páll kom þá í pontu Alþingis og sagði:

Hvað varðar það hvort ríkisstjórnin ætli að ráðast í einhverjar meiri háttar breytingar þegar kemur að stöðu Landsvirkjunar þá ætla ég að vera alveg skýr með það að ekki kemur til greina að fara að brjóta upp Landsvirkjun til að stuðla að samkeppni á raforkumarkaði. Það kemur ekki til greina að draga með einhverjum hætti úr eignarhaldi ríkisins á Landsvirkjun eða að einkavæða þetta orkufyrirtæki þjóðarinnar. Ekkert slíkt kemur til greina. Ríkisstjórnin mun standa vörð um Landsvirkjun.