Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 169,9 milljarða króna árið 2024 eða um sem nemur 3,7 prósentum af vergri landsframleiðslu (VLF) ársins. Í nýrri samantekt á vef Hagstofunnar er bent á að til samanburðar hafi afkoma hins opinbera verið neikvæð um 101,2 milljarða króna árið 2023, eða um sem nemur 2,3 prósentum af vergri landsframleiðslu.
„Á verðlagi hvers árs jukust tekjur hins opinbera um 113,6 milljarða frá fyrra ári, eða 6,1%, á meðan útgjöld hins opinbera jukust um 182,3 milljarða króna eða 9,2%.“
Viðbrögð við náttúruhamförum eru sögð vega þungt í útgjaldaaukningu hins opinbera og neikvæðri afkomu á árinu 2024.
Bein útgjöld vegna úrræða sem hið opinbera greip til vegna jarðhræringa og eldgosa við Grindavík hafi numið yfir 87 milljörðum króna á árinu.
„Þar eru meðtalin uppkaup Þórkötlu á fasteignum í Grindavík og uppbygging varnargarða ásamt húsnæðis- og vinnumarkaðsstuðningi vegna náttúruvár.“
Á síðsta ári voru tekjur hins opinbera 1.988,6 milljarðar króna (43,3 prósent af VLF) samanborið við 1.874,9 milljarða árið áður (42,9 prósent af VLF).
Heildartekjur ríkissjóðs eru sagðar hafa aukist um 5,0 prósent á milli ára, en tekjur sveitarfélaga um 9,2 prósent.
Skattar á tekjur og hagnað, sem séu stærsti tekjuliður hins opinbera, hafi staðið undir 42,7 prósentum af heildartekjum ríkisins í fyrra. Í heildina hafi skatttekjur hins opinbera aukist um 8,1 prósent á árinu 2024.

Þá kemur fram að útgjöld hins opinbera hafi numið 2.158,4 milljörðum króna árið 2024 eða sem svari til 47,0 prósenta af VLF. Árið áður hafi útgjöldin verið 1.976,2 milljarðar, eða 45,2 prósent af VLF.
„Útgjöld ríkissjóðs jukust um 9,9 prósent á milli ára, útgjöld sveitarfélaga um 6,1 prósent og útgjöld almannatrygginga um 9,1 prósent.“
Hrein útgjöld hins opinbera á síðasta ári, þegar tekjur vegna sölu á vöru og þjónustu hafa verið dregnar frá, eru sagðar hafa numið 2.039,8 milljörðum króna.
„Meirihluti útgjalda hins opinbera rennur til samneyslu, þ.e. launaútgjöld, afskriftir og kaup á vörum og þjónustu að frádreginni sölu á vörum og þjónustu eða sem nemur 58,3 prósentum af hreinum gjöldum. Samneysluútgjöld hins opinbera námu 1.188,7 milljörðum króna á árinu 2024 sem er aukning um 7,9 prósenta á milli ára á verðlagi hvers árs.“
Þá er hrein peningaleg eign hins opinbera sögð hafa verið neikvæð um 1.562,6 milljarða króna í lok árs 2024.
„Þar af námu heildarskuldir hins opinbera 4.110,2 milljörðum króna í lok ársins 2024 eða 89,6 prósentum af VLF. Peningalegar eignir hins opinbera námu 2.547,6 milljörðum króna í lok árs 2024 eða sem nemur 55,5 prósentum af VLF.“

Ítarlegri samantekt á afkomu hins opinbera er að finna á vef Hagstofunnar.