Í byrjun september voru um tvö þúsund óseldar nýjar íbúðir á markaði um land allt, að því er kemur í nýútkominni mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Heildarfjöldi íbúða á sölu var um fimm þúsund í byrjun mánaðarins og hefur nær tvöfaldast frá upphafi árs 2023.
„Á höfuðborgarsvæðinu voru 1.337 nýjar íbúðir til sölu og 617 nýjar íbúðir til sölu á landsbyggðinni í upphafi september,“ segir þar.
Fram kemur að helmingur nýrra íbúða hafði verið 200 daga eða lengur á markaði, eða 1.031 þeirra.
„Ein þessara íbúða var fyrst auglýst til sölu fyrir rúmum tveimur árum síðan og hefur hún verið óseld í 790 daga.“
Í skýrslu HMS kemur meðal annars fram að á síðustu tólf mánuðum hafi raunvirði íbúðaverðs lækkað, en mikið framboð íbúða á sölu haldi aftur af verðhækkunum. Þá kemur fram að á lánamarkaði hafi hrein ný íbúðalán ekki verið hærri í fjögur ár.
Jafnframt kemur fram að starfsfólki í byggingariðnaði sé tekið að fækka og að velta hafi dregist saman að raunvirði eftir fjögurra ára vöxt í greininni.
„Erlendum starfsmönnum hefur fækkað um 135, en starfsmönnum í byggingargeiranum með íslenskan bakgrunn hefur fjölgað lítillega á sama tíma.“
Frekari umfjöllun um mánaðarskýrslu HMS er að finna á vef stofnunarinnar.