Skrifað hefur verið undir fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna fjögurra, Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss, og Mercosur-ríkjanna, sem samanstanda af Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ.
Undirritunin fór fram við hátíðlega athöfn í Ríó de Janeiro í Brasilíu sl. þriðjudag. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra.
Í tilkynningu ráðuneytisins er haft eftir utanríkisráðherra að samningurinn hafi mikla þýðingu fyrir hagsmuni Íslands og að hann tryggi aðgang fyrir íslenskar afurðir inn á stærsta markaðssvæði Suður-Ameríku, sem telji yfir 270 milljónir íbúa.

„Þá eflir hann tengsl okkar og hinna EFTA-ríkjanna við Mercosur-ríkin, stuðlar að fyrirsjáanlegum og reglubundnum alþjóðaviðskiptum og styður þar með við alþjóðaviðskiptakerfið sem er okkur svo mikilvægt,“ segir Þorgerður Katrín.
Fram kemur að í samningnum felist meðal annars að tollar á allar helstu útflutningsafurðir Íslands, þar á meðal sjávarafurðir, falli niður, annað hvort í áföngum eða strax við gildistöku.
„Í samningnum er einnig að finna ákvæði er lúta að vernd líffræðilegrar fjölbreytni, sjálfbærum landbúnaði og réttindum launafólks, auk sérstakra ákvæða gegn skógareyðingu.“
Fríverslunarsamningurinn er sagður taka gildi eftir að hafa verið lagður fyrir þjóðþing ríkjanna til fullgildingar.