Kópavogur hefur samráð við íbúa um innleiðingu gervigreindar

Stafrænt bókunarkerfi sem innleitt hefur vreið fyrir símatíma og fundi hjá lykilstofnunum Kópavogsbæjar er sagt spara allt að 715 klukkustundir á ári í biðtíma.

Bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar
Bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar. Mynd/Google Earth

Íbúasamráð um innleiðingu gervigreindar og stafrænna lausna í þjónustu við íbúa er hafið hjá Kópavogsbæ. Í tilkynningu bæjarins kemur fram að íbúar séu hvattir til að taka virkan þátt og koma með hugmyndir að því hvernig tæknin geti bætt, einfaldað og gert þjónustu bæjarins skilvirkari.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri segir íbúasamráðið vera einstakt tækifæri til að móta framtíðina saman.

„Við viljum nýta kraftinn sem býr í samfélaginu okkar og fá innsýn frá íbúum sem þekkja bæinn best. Gervigreind og stafræn þróun bjóða upp á ótal möguleika til að bæta þjónustu og gera hana aðgengilegri,“ segir hún.

Íbúasamráðið er sagt hluti af stærra umbótaverkefni sem skrifstofa umbóta og þróunar hjá bænum leiði. Nú þegar hafi Kópavogsbær innleitt stafrænt bókunarkerfi fyrir símatíma og fundi hjá lykilstofnunum bæjarins, sem spari allt að 715 klukkustundir á ári í biðtíma.

Fram kemur að gáttin til að skila inn hugmyndum verði opin frá 16. september til 7. október næstkomandi og sé að finna á samráðsvef Betra Íslands sem Kópavogur hafi nýtt í ýmis samráðsverkefni. 

„Allar hugmyndir verða metnar af starfsfólki og teknar til skoðunar með það að markmiði að nýta þær í þróun nýrra lausna. Hugmyndir sem ekki tengjast beint verkefninu verða varðveittar í hugmyndabanka,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Frekari upplýsingar er að finna á vef Kópavogsbæjar.