Áhersla Íslands var á jarðhita og gervigreindariðnað

Á fundi evrópskra orkumálaráðherra benti ráðherra Íslands á mikilvægi jarðhita og hvernig Ísland henti til rekstur gagnavera.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra talar á fundi evrópskra orkumálaráðherra í Kaupmannahöfn fyrir helgi. Mynd/Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hvatti til aukins samstarfs á sviði jarðhitanýtingar á fundi evrópskra orkumálaráðherra í Kaupmannahöfn sem fram fór sl. föstudag.

Í frétt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins af fundinum er hann sagður hafa fagnað því sérstaklega að Evrópusambandið vinni nú að aðgerðaáætlun um jarðhita.

„Jóhann lagði áherslu á að jarðhiti væri loftslagsvæn orkulind sem gæfi stöðuga orkuframleiðslu og hentaði þannig vel í samspili við sveiflugjarna orkugjafa á borð við vind- og sólarorku. Mikilvægt væri að hafa augun á jarðhita þegar Evrópuregluverk um orkumál og leyfisveitingar er þróað,“ segir þar.

Þessar áherslur er Jóhann Páll sagður hafa áréttað sérstaklega á tvíhliða fundi sínum með Timmy Dooley, sem fór fyrir sendinefnd Írlands á fundinum. Írar taka við formennsku í ráðherraráði ESB á seinni hluta næsta árs .

Jóhann Páll fjallaði einnig um mikilvægi þess að gagnaversiðnaður á tímum gervigreindarbyltingar sé knúinn endurnýjanlegri orku. Lönd eins og Ísland – með gnótt stöðugrar grænnar orku, köldu loftslagi og vel menntuðu vinnuafli – ættu að geta boðið upp á sérstaklega hagstæðar aðstæður fyrir slíka starfsemi.

Hann benti á að Ísland hefði þegar náð því markmiði að um 100% rafmagnsframleiðslu væri knúin hreinni og endurnýjanlegri orku. Stór hluti raforkunnar stæði undir málmframleiðslu sem hefði eitthvert minnsta kolefnisfótspor heims. Ísland væri samstíga öðrum Evrópuríkjum hvað varðar áherslu á orkuskipti og að leita hagkvæmustu leiða til að draga úr losun og auka orkuöryggi.

Jóhann Páll tjáði sig um fundinn á Facebook í gær og sagði góðan fund með evrópskum orkumálaráðherrum að baki í Kaupmannahöfn.

„Ég fjallaði sérstaklega um jarðhitanýtingu sem uppsprettu hagvaxtar, nýsköpunar og loftslagslausna, hvatti til aukins Evrópusamstarfs á þessu sviði og að horft yrði til jarðhitans við þróun Evrópuregluverks um orkumál og leyfisveitingar.“

Þá segir hann frá áherslum sínum hvað varðar gervigreind og stafræna framþróun sem einnig hafi verið ofarlega á baugi á fundinum.

„Gervigreindardrifinn hagvöxtur verður að haldast í hendur við útfösun jarðefnaeldsneytis – og þá þurfa gagnaverin að ganga fyrir grænni orku,“ segir Jóhann Páll.