Nemendur á skólastigum fyrir ofan grunnskóla á Íslandi voru 44.758 haustið 2024 og hafði fjölgað um 1.312 frá fyrra ári eða um þrjú prósent, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.
„Nemendum fjölgaði á öllum skólastigum nema doktorsstigi þar sem nemendum fækkaði um 52. Á framhaldsskólastigi fjölgaði nemendum um 227 (1,0%), um 29 (1,9%) á viðbótarstigi og um 1.108 (5,8%) á háskólastigi neðan doktorsstigs.“
Breytingin er sögð viðsnúningur frá fyrra ári þegar nemendum fækkaði á öllum skólastigum nema viðbótarstigi, en það er nám sem bætist ofan á nám á framhaldsskólastigi en er þó ekki á háskólastigi.
„Alls sóttu rúmlega 20.300 karlar nám og rúmlega 24.400 konur. Körlum við nám fjölgaði um 478 frá fyrra ári (2,4%) og konum um 834 (3,5%). Karlar voru 53% nemenda á framhaldsskólastigi, 77% á viðbótarstigi og 35% nemenda á háskóla- og doktorsstigi.“
Þá kemur fram að alls hafi 94,7 prósent 16 ára nemenda verið skráðir í nám á framhaldsskólastigi haustið 2024, en það hlutfall hafi verið 94,8 prósent haustið 2023.
„Árin 2019-2022 var hlutfall 16 ára í framhaldsskóla yfir 95%. Lítið eitt lægra hlutfall 17-19 ára nemenda stundaði nám á framhaldsskólastigi haustið 2024 en haustið 2023.“
Í tölum Hagstofunnar kemur jafnframt fram að erlendir ríkisborgarar hafi verið 9,0 prósent nemenda á framhalds- og háskólastigi haustið 2024 og hafi ekki verið fleiri áður. Þetta hlutfall hafi verið 8,2 prósent haustið 2023.
Hæst hafi hlutfall erlendra ríkisborgara á doktorsstigi, þar sem þeir voru 44,0 prósent nemenda.
„Þegar litið er á fjölda erlendra ríkisborgara samtals á öllum skólastigum voru Pólverjar fjölmennastir, rúmlega 650 talsins en á þriðja hundrað nemenda voru frá Bandaríkjunum, Filippseyjum og Þýskalandi. Ef eingöngu er litið á doktorsstig voru Bandaríkjamenn fjölmennastir erlendra ríkisborgara, 35 talsins.“
Nánari greiningu á samsetningu nemenda við upphaf síðasta skólaárs má finna í umfjöllun Hagstofu Íslands.