Ekki mannréttindi að fá að áreita fólk segir ráðherra

Þrátt fyrir lögfestingu aukinna úrræða lögreglu til varna frekari brotum gegn brotaþolum síðustu ár og áratugi hefur ofbeldi, heimilisofbeldi þar með talið, aukist hér á landi.

Lögreglustöðin við Hlemm.
Lögreglustöðin við Hlemm. Mynd/Google Earth

Dómsmálaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Breytingunum er sagt ætlað að styrkja réttarstöðu brotaþola og þá sérstaklega þeirra sem mega þola heimilisofbeldi og umsáturseinelti.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Mynd/dómsmálaráðuneytið

Haft er eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að heimilisofbeldi og umsátur séu ekki einkamál, heldur mál sem varði samfélagið í heild. 

„Það eru ekki mannréttindi að fá að áreita fólk og ábyrgðin á að hvíla á gerendum en ekki þeim sem fyrir ofbeldinu verða. Þolendur ofbeldis hafa sagt sínar sögur og kallað eftir breytingum. Með þessu erum við svo sannarlega að hlusta og taka mikilvæg skref til að tryggja öryggi þeirra,“ segir hún.

Breytingunum er sagt ætlað að koma til móts við þær áskoranir sem lögregla og ákæruvald hafi staðið frammi fyrir hvað varði endurtekin brot og sönnun brota þeirra, en erfitt hafi reynst að sanna slík brot með tilheyrandi afleiðingum fyrir brotaþola, en án afleiðinga fyrir geranda.

Breytingar til verndar brotaþolum

„Ráðherra skipaði starfshóp í mars sl. sem falið var að yfirfara gildandi lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili, sem og framkvæmd þeirra ásamt því að leggja til breytingar í samræmi við þá yfirferð. Þá var sérstaklega til skoðunar hvort, og þá með hvaða hætti, hægt er að nýta ökklabönd við rafræna vöktun til að auka öryggi brotaþola,“ segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.

Starfshópurinn skilaði tillögum til ráðherra og er áformin nú sögð byggja á vinnu hópsins.

Helsta breytingin felur í sér að komið verði á fyrirkomulagi um rafrænt eftirlit með staðsetningarbúnaði, til að mynda ökklaböndum.

„Tilgangur eftirlitsins er að tryggja að ákvörðunum um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili sé framfylgt, en heimild til slíks eftirlits er ekki að finna í núgildandi lögum. Frumvarpið mun byggja á reynslu og framkvæmd frá öðrum Norðurlöndum, einkum Noregi og Danmörku.“

Þá verði málsmeðferð einfölduð þannig að sá lögreglustjóri sem fer með rannsókn máls geti sjálfur tekið ákvörðun um nálgunarbann, brottvísun af heimili eða rafrænt eftirlit.

„Sú breyting mun stuðla að auknu samræmi og ekki síður samfellu í meðferð mála og auka réttaröryggi brotaþola.“

Sömuleiðis verður tekin til skoðunar framkvæmd sektargerða vegna brota gegn nálgunarbanni og brottvísunar af heimili þannig að gengið verði úr skugga um skilvirkni sekta og hvort beiting þeirra hafi þann fælingarmátt gegn brotum sem þeim er ætlað.

Heimilisofbeldi algengustu ofbeldismálin

Ráðuneytið bendir á að undir lok síðustu aldar hafi ýmis lög verið sett sem öll hafi haft að markmiði að vernda þolendur afbrota og bæta réttarstöðu þeirra. Á síðustu árum hafi einnig verið gerðar mikilvægar breytingar á íslenskri löggjöf með sama markmið að leiðarljósi.

Þrátt fyrir lögfestingu aukinna úrræða lögreglu til varna frekari brotum gegn brotaþola hafi ofbeldi, þar með talið heimilisofbeldi, aukist á Íslandi.

„Í því sambandi má nefna að algengustu ofbeldismál sem lögregla fæst við er ofbeldi á milli skyldra og tengdra aðila eða heimilisofbeldi.“

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir í tilkynningu ráðuneytsins að áhersla hennar sé að kerfið taki utan um þolendur ofbeldis.

„Með þessu fær lögreglan þau verkfæri sem hún þarf. Svona ofbeldi er mun útbreiddara en flestir gera sér grein fyrir. Ég hef heyrt ótal sögur þolenda heimilisofbeldis og eltihrella. Öryggi þeirra og þeirra nánustu á að vera tryggt. Þær breytingar sem ég ætla að leggja fram á Alþingi eru stórt skref í átt að því,“ segir hún.

Fram kemur að með rafrænu eftirliti í málaflokknum aukist öryggi brotaþola verulega og hægt verði að bregðast mun fyrr við.

Fram kemur hjá Dómsmálaráðuneytinu, sem birti súlurutið hér að ofan, að á árinu 2023 hafi verið skráðar hjá lögreglu 92 beiðnir um nálgunarbann og 1.122 heimilisofbeldismál. Árið 2024 hafi verið skráðar 79 beiðnir um nálgunarbann og 1.161 heimilisofbeldismál.

Áformin má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til og með 16. september næstkomandi.