Í nýliðnum ágústmánuði voru stofnaðar 120 lóðir, samkvæmt nýbirtum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Rúmur þriðjungur þeirra voru sumarhúsalóðir og af þeim nærri þrír fjórðu hlutar í Bláskógabyggð.
Fjöldi sumarhúsalóða var 43, þar af 31 lóð í Bláskógabyggð. Þá segir HMS að tíu sumarhúsalóðir hafi verið stofnaðar í Múlaþingi.
„Íbúðarhúsalóðir voru 33 flestar í Sveitarfélaginu Ölfusi og í Skagafirði eða 11 á báðum stöðum,“ segir í frétt HMS.
Þá kemur fram að tólf vegsvæði hafi verið staðfest, flest í Rangárþingi ytra eða vegna Hagabrautar (vegnúmer 286). Við uppbyggingu 7,4 kílómetra langs kafla á Hagabraut milli Landvegar og Reiðholts í Holtum hafi jafnframt þurft að stofna land undir vegsvæðið.
„Atvinnulóðir voru 18 og dreifast þær nokkuð jafnt yfir stærri sveitarfélögin. 10 eignir eru með notkunina lóð eða annað land.“
Þá hafi ein jörð verið stofnuð og þrjár eignir fengið skráninguna íbúðar- og atvinnulóð.