Samtök iðnaðarins (SI) fagna áformum um sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og telja þau mikilvægt skref í átt að einföldun stjórnsýslu og skilvirkari ferlum við uppbyggingu mannvirkja. Hjá Skipulagsstofun starfa um 25 manns og um 160 hjá HMS.
Í umsögn SI um áformin í samráðsgátt stjórnvalda er jafnframt að finna varnaðarorð um að tryggja verði að dýrmæt sérfræðiþekking glatist ekki við breytingarnar og bent á frekari tækifæri til umbóta.
Í samráðsgáttinni segir að eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar sé að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Og með sameiningu starfsemi Skipulagsstofnunar og HMS verði til öflugri stofnun sem hafi getu til að vinna að þeim kerfisbreytingum í húsnæðismálum sem boðaðar séu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarnnar.
„Með sameiningu næst fram einföldun stjórnsýslu skipulags- og mannvirkjamála. Ferill frá skipulagi til fullbúins mannvirkis verður hjá einni stofnun gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Með sameiningu verður aukin áhersla á hagkvæmni í landnýtingu, sjálfbærni og nýtingu auðlinda,“ segir þar.
Samtök iðnaðarins lýsa í umsögn sinni yfir stuðningi við þau markmið sem stefnt sé að með sameiningu stofnananna.
„Samtökin hafa lengi bent á að regluverk og stjórnsýsla skipulags- og mannvirkjamála hér á landi sé of flókið, meðal annars vegna þess hve margir aðilar koma að ferlinu,“ segir í nýrri frétt á vef SI.
Sameining sé því talin geta leitt til aukinnar skilvirkni, betri samlegðar í þjónustu og færri flækjustiga fyrir fyrirtæki og almenning.
„Samtökin sjá fjölmörg tækifæri fólgin í sameiningunni, ekki síst með samþættingu stafrænna lausna sem gætu mótað einn, heildstæðan feril og afgreiðslustað fyrir viðskiptavini. Slík þróun myndi draga verulega úr samfélagslegum kostnaði við uppbyggingarferli, öllum til hagsbóta.“
Varnaðarorð
SI leggja um leið, þrátt fyrir jákvæðni í garð áformanna, ríka áherslu á að fyrirhuguð hagræðing komi ekki niður á þeirri sérfræðiþekkingu sem innan beggja stofnana búi. Brýnt sé að huga vel að því í nýju skipuriti að sú reynsla og þekking sem byggst hafi upp fái að njóta sín áfram.
Samtökin benda jafnframt á að samhliða sameiningunni sé kjörið tækifæri fyrir stjórnvöld að taka afstöðu til frekari einföldunar á leyfisveitingakerfinu. Sérstaklega sé þar horft til þess að Umhverfis- og orkustofnun gæti farið með forræði yfir málsmeðferð mats á umhverfisáhrifum.
„Slíkt væri í takt við hugmyndafræði um „allt á einum stað“ (e. one-stop-shop) sem myndi stytta boðleiðir og einfalda ferla við undirbúning framkvæmda til muna,“ segja samtökin.