Fagna stefnu en harma skort á samráði við atvinnulífið

Samtöki atvinnulífsins leggja áherslu á samræmt orðalag í íslenskri stefnu og alþjóðlegum skuldbindingum til þess að forðast megi „gullhúðun“ skuldbindinga.

Lúpína
Lúpína. Mynd/ÓKÁ

Tuttugu og fimm umsagnir hafa borist um drög að stefnu um líffræðilega fjölbreytni sem birt er í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að skila inn umsögn rann út 20. þessa mánaðar.

Í umsögn Samtaka atvinnulífsins (SA) fagna samtökin heildstæðri stefnumótun um vernd, endurheimt og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni en telja jafnframt að samráði við atvinnulífið hafi verið ábótavant við undirbúning stefnunnar.

Samtökin benda á að þrátt fyrir ríka hagsmuni atvinnulífsins af heilbrigðu vistkerfi hafi fulltrúar atvinnulífsins ekki átt sæti í stýrihópnum sem vann að hvítbókinni um málið. Þá hafi fundir sem haldnir voru með fyrirtækjum ekki tryggt jafnan aðgang allra að samráði.

„SA leggur áherslu á að slíkt samtal fari fram snemma í ferli skipulags, lagasetningar og leyfisveitinga,“ segir í umfjöllun á vef samtakanna.

Fram kemur að í umsögninni sé einnig bent á mikilvægi jafnvægis milli verndunarmarkmiða og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

„Núverandi leyfisferli í umhverfis- og skipulagsmálum séu flókin og tímafrek og mikilvægt sé að auka einföldun og skilvirkni í stað þess að bæta við nýjum kvöðum.“

Áherslur um vernd líffræðilegrar fjölbreytni þurfi að styðja við raunhæfar og hagkvæmar leiðir sem ekki hamli óþarflega uppbyggingu innviða eða nýtingu auðlinda.

Samtökin leggja jafnframt áherslu á samræmt orðalag í íslenskri stefnu og alþjóðlegum skuldbindingum og benda á að drögin víki frá orðalagi Kunming-Montreal-samkomulagsins.

„Ef ástæða er fyrir umræddu misræmi í orðalagi er mikilvægt að því fylgi sérstakur rökstuðningur, enda er það stefna ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að komið verði í veg fyrir gullhúðun á alþjóðlegum skuldbindingum. Samræmt orðalag kemur í veg fyrir mismunandi túlkanir, tryggir gagnsæi og að aðgerðir verði markvissar, árangursríkar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands,“ segir í umsögninni.

Þá árétta samtökin mikilvægi þess að áhrif nýrrar löggjafar á atvinnulífið séu metin með fullnægjandi hætti, sérstaklega þegar um sé að ræða íþyngjandi breytingar.

Í samráðsgáttinni kemur fram að síðast hafi stefna Íslands um líffræðilega fjölbreytni verið gefin út árið 2008.

„Íslandi ber skylda að móta stefnu um líffræðilega fjölbreytni og uppfæra hana reglulega þar sem þjóðin hefur undirritað samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni (Convention on Biological Diversity). Í ljósi þess hófst formleg endurskoðun stefnunnar þegar grænbók um líffræðilega fjölbreytni íslenskra vistkerfa var gefin út til samráðs árið 2022,“ segir þar.

Fram kemur að þáverandi umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra hafi á síðasta ári skipað stýrihóp til að halda áfram vinnunni og gefa út drög að hvítbók um stefnu Íslands varðandi líffræðilega fjölbreytni.

Hvítbókin, sem lögð hafi verið fram til umsagnar í samráðsgáttinni, sé undirstaða fyrir aðgerðaáætlun sem unnið verði að í framhaldi hvítbókarvinnunnar. Hún hafi verið unnin í samráði við önnur ráðuneyti, stofnanir, atvinnulífið, félagasamtök og almenning og það samráð hafi verið nýtt við gerð stefnunnar.

Þá segir að kjarna megi tilgang stefnunnar í eitt aðalmarkmið:

„Að styrkja sess líffræðilegrar fjölbreytni þvert á öll stjórnarstig og þvert á samfélagið.“