Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sagði við setningu Menningarnætur í Reykjavík að ríkisstjórnin væri samstíga um að vilja ráðast í gerð viðbyggingar við Þjóðleikhúsið sem komi til með að styrkja starfsemi þess svo um munaði og myndi með fullnægjandi hætti leysa úr fjölmörgum, áratugagömlum úrlausnarefnum.
Í frétt ráðuneytisins er haft eftir ráðherra að það sé mikið fagnaðarefni að ríkisstjórnin skuli vera einhuga um þessa „skynsamlegu og löngu tímabæru“ fjárfestingu.
„Með þessari ákvörðun er Þjóðleikhúsinu gefinn kostur á að vaxa og dafna, auka sértekjur sínar og gera reksturinn hagkvæmari. Þetta er viðeigandi gjöf til þjóðarinnar á þessu tímamótaári lykilstofnunar í íslensku menningarlífi,“ segir ráðherra.
Ráðuneytið bendir á að frá opnun Þjóðleikhússins árið 1950 hafi íbúafjöldi höfuðborgarsvæðisins þrefaldast, en aðstaða leikhússins lítið breyst á sama tíma.
„Í hartnær 40 ár hefur verið kallað eftir því að ráðist verði í byggingu einfaldrar og hagkvæmrar byggingar á nærliggjandi lóð sem gæti hýst annað leiksvið, svokallaðan „svartan kassa,” sem er sveigjanlegra en hefðbundið leiksvið.“
Fram kemur að gert sé ráð fyrir að umrædd bygging geti tekið á móti um 250 til 320 áhorfendum á hverja sýningu með tilheyrandi tekjum fyrir Þjóðleikhúsið. Skortur á slíku rými hafi verið flöskuháls í starfsemi leikhússins, sem ekki hafi getað nýtt til fulls innviði sína án slíkrar aðstöðu.
„Með viðbyggingunni er þó ekki aðeins þessi vandi úr sögunni. Þjóðleikhúsið hefur jafnframt skort æfingaaðstöðu, sem hefur haft faglegan og fjárhagslegan vanda í för með sér. Viðbyggingin mun hýsa æfingaaðstöðu sem og verðmætt búninga- og leikmunasafni leikhússins sem liggur að óbreyttu undir skemmdum í núverandi húsnæði.“
Eins segir ráðuneytið að aðgengismál Þjóðleikhússins komi til með að taka stakkaskiptum með tilkomu nýja hússins, en þau hafi lengi þarfnast úrbóta. Með viðbyggingu á nærliggjandi lóð séu því leyst þó nokkur aðkallandi mál í einu, og starfsemi Þjóðleikhússins sameinuð á einn stað.
Á að vera tilbúið á 80 ára afmælinu
„Frumgreining, sem ráðuneytið lét gera, gerir ráð fyrir að fjárfestingin muni nema um tveimur milljörðum króna og að byggingin verði um 2-3.000 fermetrar að stærð. Næstu skref eru að fela Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignir verkefnið og óska formlega eftir að hafin verði undirbúningsvinna og áætlanagerð á vegum stofnunarinnar.“
Að þeirri vinnu lokinni segir ráðuneytið að við taki verklegar framkvæmdir með það að markmiði að viðbyggingin verði tekin í notkun árið 2030, á 80 ára afmæli Þjóðleikhússins.
„Við hér í Þjóðleikhúsinu erum hreinlega í skýjunum með þær frábæru fréttir að langþráður draumur um nýtt leiksvið og aðrar úrbætur í húsnæðismálum Þjóðleikhússins verði að veruleika. Byggingin markar í raun merkustu tímamót í 75 ára sögu Þjóðleikhússins, því að þetta er í fyrsta sinn frá því að leikhúsið var vígt sem nýtt leiksvið er byggt. Sérhannað leikhús býður upp á einstaklega spennandi ný og fjölbreytt tækifæri til að skapa nútímalegar og heillandi sýningar. Byggingin mun gera okkur enn betur kleift að sinna okkar hlutverki og skapa ríkulegri verðmæti fyrir landsmenn alla. Við þökkum ráðherra og ríkisstjórninni innilega fyrir stuðninginn við Þjóðleikhúsið og leikhúslífið í landinu,“ segir Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri.