Dómsmálaráðherra boðar tillögur til verndar brotaþolum

Í vinnu starfshóps ráðherra um nálgunarbönn og brottvísun af heimili var sérstaklega litið til löggjafar og framkvæmdar á Norðurlöndum og þróunar sem þar hefur átt sér stað.

Starfshópur skilar dómsmálaráðherraniðurstöðum.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, Kristín Alda Jónsdóttir, Drífa Kristín Sigurðardóttir, Erna Sif Jónsdóttir, Anna Barbara Andradóttir og Linda Dröfn Gunnarsdóttir. Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur tekið við tillögum starfshóps að breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Fram kemur í frétt ráðuneytisins að tillögurnar og aðgerðir tengdar þeim verði kynntar á næstu vikum.

„Það er skýrt í mínum huga að ofsóknir eiga að hafa afleiðingar og það verður aldrei talið til mannréttinda að fá að ofsækja fólk. Þolendur eltihrella og þolendur ofbeldis í nánum samböndum eiga að finna fyrir öryggi, sér í lagi á eigin heimili. Með þeim aðgerðum sem kynntar verða og frumvarpi sem ég mun leggja fram á Alþingi stöndum við vörð um þolendur og gerum það sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi þeirra,“ segir dómsmálaráðherra.

Litið til löggjafar og framkvæmdar á Norðurlöndum

Fram kemur að starfshópurinn hafi verið skipaður 25. mars síðastliðinn og verið falið að yfirfara gildandi lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili, sem og framkvæmd þeirra ásamt því að leggja til breytingar í samræmi við þá yfirferð. Þá hafi sérstaklega verið til skoðunar hvort, og þá með hvaða hætti, hægt væri að nýta ökklabönd við rafræna vöktun til að auka öryggi brotaþola.

„Við vinnu hópsins var sérstaklega litið til löggjafar og framkvæmdar á Norðurlöndunum og þeirrar þróunar sem þar hefur átt sér stað á sviði rafræns eftirlits með nálgunarbanni og brottvísun af heimili.“

Í starfshópnum voru:

  • Anna Barbara Andradóttir frá Ríkissaksóknara
  • Kristín Alda Jónsdóttir frá Ríkislögreglustjóra
  • Hildur Sunna Pálmadóttir frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir frá Kvennaathvarfinu
  • Jakob Birgisson frá dómsmálaráðuneytinu
  • Erna Sif Jónsdóttir frá dómsmálaráðuneytinu
  • Drífa Kristín Sigurðardóttir frá dómsmálaráðuneytinu, formaður hópsins