Landsvirkjun fær sekt vegna brota á samkeppnislögum

Landsvirkjun er ósammála niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og þeirri markaðsskilgreiningu sem byggt er á í sektarákvörðun þess.

Vatnsaflsvirkjun. Búðarhálsstöð. Landsvirkjun.
Við Búðarhálsstöð. Mynd: Landsvirkjun.

Samkeppniseftirlitið hefur lagt 1,4 milljarða króna sekt á Landsvirkjun fyrir að hafa með alvarlegum hætti misnotað markaðsráðandi stöðu sína með verðlagningu á raforku í útboðum Landsnets á árunum 2017 til 2021. Fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins að ákvörðunin sé tekin eftir ítarlega rannsókn.

Landsvirkjun kveðst ósammála niðurstöðu eftirlitsins og ætlar að skjóta ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

„Verðlagning Landsvirkjunar í umræddum útboðum gerði það að verkum að viðskiptavinir Landsvirkjunar, sem versluðu raforku af Landsvirkjun og tóku þátt í útboðum Landsnets í samkeppni við Landsvirkjun, gátu ekki selt raforkuna nema með tapi,“ segir á vef stofnunarinnar.

Háttsemi Landsvirkjunar hafi unnið gegn því að nýir og minni keppinautar á raforkumarkaði næðu fótfestu og gætu þannig aukið samkeppni fyrirtækjum og einstaklingum til hagsbóta.

Ákvörðun sem fjalli um háttsemi rótgróinna orkufyrirtækja

Haft er eftir Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, að virk samkeppni á raforkumarkaði hafi úrslitaþýðingu fyrir samkeppnishæfni Íslands og hagsmuni þeirra sem landið byggi.

„Ef rétt er á málum haldið getur virk samkeppni stuðlað að raforkuöryggi, flýtt fyrir orkuskiptum, hraðað öðrum nýjungum og tryggt okkur hagstætt raforkuverð til framtíðar litið,“ segir hann.

Í því ljósi skipti miklu máli, að mati Páls Gunnars, hvernig stór og rótgróin raforkufyrirtæki, oftast í opinberri eigu, hagi sinni starfsemi. Ákvörðun eftirlitsins fjalli um það.

Landsvirkjun fer yfir forsögu málsins á vef sínum og bendir á að Landsnet hafi til fjölda ára keypt rafmagn í sérstökum útboðum.

„Um er að ræða rafmagn sem er Landsneti nauðsynlegt til að bæta upp fyrir orku sem tapast í flutningskerfinu, svokölluð flutningstöp. Landsnet annast rekstur flutningskerfisins og innheimtir kostnað af rekstri þess, þar á meðal vegna flutningstapa, frá notendum, þ.e. stórnotendum, heimilum, stofnunum og fyrirtækjum.“

Kaup Landsnets á rafmagni séu forsenda þess að tryggja megi örugga afhendingu rafmagns til almennra nota fyrir heimili og fyrirtæki og af þeim sökum mikilvægur þáttur í því að tryggja orkuöryggi í landinu.

Til fjölda ára hafi Landsvirkjun haldið eftir raforku í kerfum sínum sem var ætlað hafi verið að tryggja nægt framboð til Landsnets.

Fyrsta skilgreining á markaði vegna kaupa Landsnets

„Engar slíkar skyldur hvíla á raforkuframleiðendum að lögum enn sem komið er, þrátt fyrir augljósa þörf fyrir reglusetningu um þetta efni,“ bendir Landsvirkjun á.

Landsvirkjun segir að með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nú hafi í í fyrsta sinn verið tekin afstaða til þess hvernig skilgreina bæri markað vegna kaupa Landsnets á rafmagni til flutningstapa.

„Afstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að um sjálfstæðan markað sé að ræða á smásölustigi.“

Af þeirri skilgreiningu leiði að Landvirkjun hafi verið skylt að haga verðlagningu í útboðum Landsnets með þeim hætti að framleiðendum og sölufyrirtækjum sem keyptu raforku af Landsvirkjun í heildsölu væri gert mögulegt að bjóða lægra en Landsvirkjun í umræddum útboðum.

„Nánar tiltekið að samkeppnislögin standi vörð um milliliði sem hvergi er að finna fordæmi fyrir hvorki á Íslandi né í Evrópu,“ segir Landsvirkjun.

Ákvörðun sem kom á óvart

„Landsvirkjun er ósammála niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og þeirri markaðsskilgreiningu sem byggt er á enda sé ljóst að Landsnet er, samkvæmt fyrirkomulagi raforkuviðskipta á Íslandi, kaupandi raforku á efra sölustigi en ekki endanotandi.“

Þetta segir Landsvirkjun að hafi verið endanlega staðfest í síðasta mánuði þegar Landsnet keypti alla þá orku sem tapaðist í flutningskerfinu beint í gegnum heildsölumarkað í stað sérstakra útboða eins og áður hafði verið.

„Þá eru það Landsvirkjun mikil vonbrigði að Samkeppniseftirlitið hafi séð ástæðu til að beita refsikenndum viðurlögum í málinu enda er ákvörðun eftirlitsins réttarskýrandi um nýtt samkeppnislegt álitaefni.“

Landsvirkjun segir að þátttöku í útboðum Landsnets fyrst og síðast hafa verið ætlað að uppfylla samfélagslegar skyldur fyrirtækisins og tryggja raforkuöryggi á Íslandi og að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins verði skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er aðgengileg hér .