Sjúkratryggingar Íslands, Klíníkin Ármúla og Stoðkerfi í samstarfi við Læknahúsið DEA Medica hafa gert með sér samning um framkvæmd liðskipta-, bak-, kviðsjár-, og brjóstaminnkunaraðgerða með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga til næstu þriggja ára.
Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og forsvarsmenn þjónustuveitenda hafi staðfest samninginn í höfuðstöðvum Sjúkratrygginga í gær, þriðjudaginn 12. ágúst.
„Bætt aðgengi sjúklinga að nauðsynlegri þjónustu, skýrari umgjörð hennar og stytting biðlista eru helstu markmið samningsins,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Haft er eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að hún telji um að ræða góða og skynsamlega samninga þar sem í fyrirrúmi séu hagsmunir sjúklinganna, gæði þjónustunnar, skilvirkni og hagkvæmni. Þetta séu jafnframt fyrstu heildstæðu langtímasamningarnir um þessa þjónustu.
„Það skapar sjúklingum og þjónustuveitendum aukinn fyrirsjáanleika sem er ótvíræður hagur beggja. Fyrst og síðast er markmiðið að stytta biðlista og þar með bið sjúklinga eftir þessum mikilvægu og lífsbætandi aðgerðum“ segir hún.
Í tengslum við samninginn verði jafnframt lögð áhersla á að einfalda kerfið, auka skilvirkni og tryggja jafnræði gagnvart sjúklingum.
„Meðal annar að þeir komist hindrunarlaust inn á miðlægan biðlista þegar faglegt mat sérfræðilæknis liggur fyrir.“
Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins að samningarnir séu gerðir að undangengnu opnu innkaupaferli.
„Kveðið er á um hvernig fjármagn skiptist hlutfallslega á milli þjónustuveitenda og enn fremur um hlutfallslega skiptingu fjármagns milli aðgerðaflokka samkvæmt viðmiðum SÍ sem endurskoðuð eru árlega.“
Miðað við fyrirliggjandi fjármagn tryggja samningarnir um 1.000 aðgerðir á ársgrundvelli, þar af um 600 liðskiptaaðgerðir, um 170 bakaðgerðir, 170 kviðsjáraðgerðir og 60 brjóstaminnkunaraðgerðir.
Þá kemur fram að í samningunum felist sveigjanleiki sem geri kleift að fjölga aðgerðum innan hvers árs, fáist til þess auknar fjárveitingar, og þurfi ekki að semja um það sérstaklega. Eins sé hægt að beina auknu fjármagni í tiltekna aðgerðaflokka umfram aðra gerist þess þörf.
Haft er eftir Sigurði Helga Helgasyni forstjóra SÍ að samningarnir séu mikilvægir og feli í sér aukið umfang skurðaðgerða utan heilbrigðisstofnana.
„Með þeim er almenningi tryggt bætt aðgengi að brýnni þjónustu, sem mun stytta biðlista og létta álagi af Landspítala og öðrum sjúkrahúsum. Með langtímasamningum tryggjum við meiri stöðugleika og við höfum stigið mikilvæg skref til að treysta gæði og umgjörð þjónustunnar.“
Þá segir að aðstandendur samningsins skipi með sér samstarfsnefnd sem fjalli meðal annars um þjónustuþörf og stöðu biðlista, forgangsröðun, aðgerðatækni og miðlun sjúklinga í aðgerðir.
„Í samningnum er sérstaklega er kveðið á um að almennt skuli þeir aðilar sem framkvæma aðgerðir á grundvelli samningsins ekki gera aðgerðir af sama tagi án greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Ef brýn nauðsyn krefst getur þjónustuaðili þó sótt um undanþágu til SÍ frá þessu ákvæði sem afgreidd er í ljósi þess hvort undanþágubeiðnin byggi á málefnalegum sjónarmiðum.“