Birt hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda áform um lagabreytingar sem miða að því að skýra og efla ákvæði almennra hegningarlaga um öryggisráðstafanir gagnvart einstaklingum sem metnir eru sérstaklega hættulegir umhverfi sínu.
Í frétt dómsmálaráðuneytisins er markmið breytinganna sagt skýra ákvæði laganna um öryggisráðstafanir og færa til nútímalegra horfs með það fyrir augum að bæta þjónustu og tryggja öryggi almennings.
Með breytingunni eru innleidd í íslenska löggjöf sambærileg ákvæði og er að finna í Noregi. Þar í landi er til dæmis hryðjuverkamaðurinn og fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik vistaður í ótilgreindan tíma á grundvelli slíkra laga.
Í Noregi nefnist sérstök öryggisgæsla sem þessi forvaring og nær til sérlega hættulegra fanga sem ekki er talið forsvaranlegt að sleppa. Gert er ráð fyrir að brot varði refsivistun að fimmtán árum hið minnsta, en að refsivistun lokinni er lausn úr fangelsi háð því að nefnd telji ólíklegt að viðkomandi brjóti af sér á ný.
Dómsmálaráðuneytið hefur eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að hér sé löngu tímabært að endurskoða ákvæði um öryggisráðstafanir.
„Með þessum breytingum viljum við skapa skýrari lagaramma sem þjónar bæði almannahagsmunum og réttindum þeirra einstaklinga sem eiga í hlut. Með þessu eflum við öryggi allra í samfélaginu og tryggjum þjónustu við þá einstaklinga sem þurfa á öryggisvistunum að halda,“ segir hún.
Ráðuneytið segir frumvarpið snúa að öryggisráðstöfunum sem beitt sé gagnvart einstaklingum sem annaðhvort teljast ósakhæfir eða þar sem refsing sé ekki talin bera árangur. Þá eigi þær einnig við um sakhæfa einstaklinga sem hafi lokið afplánun en teljist áfram verulega hættulegir samfélaginu.
„Frumvarpið kemur í kjölfar margra ára undirbúningsvinnu í samstarfi við önnur ráðuneyti, heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og hagsmunasamtök. Með því er brugðist við ábendingum eftirlitsaðila innanlands og erlendis um skort á skýrleika, samræmi og ábyrgð í framkvæmd öryggisráðstafana, auk þess sem tryggt er að lagaheimildir standist kröfur stjórnarskrár og mannréttindasáttmála.“
Fram kemur að ákvæði laga um öryggisráðstafanir hafi að mestu staðið efnislega óbreytt frá setningu laganna, eða í rúm 80 ár.
„Skort hefur á samræmi í dómaframkvæmd í málum og heimild laganna um öryggisráðstafanir hefur sjaldan verið beitt. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að skýrt sé hvenær megi grípa til hvaða öryggisráðstafana og á hverju slík ákvörðun skuli byggjast.“
Samhliða þessum breytingum segir í frétt dómsmálaráðuneytisins að félags- og húsnæðismálaráðherra ætli í haust að leggja fram uppfært frumvarp um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn.
„Áformaskjal þess efnis er í Samráðsgátt stjórnvalda. Í því frumvarpi verður kveðið á um nýja stofnun sem fer með framkvæmd og fullnustu öryggisráðstafana, auk annarra verkefna. Sú löggjöf gerir ráð fyrir viðeigandi húsnæði fyrir þá þjónustu sem um ræðir.“
Fram kemur að samkvæmt frumvarpinu verði lögð áhersla á batamiðaða nálgun við einstaklinga sem sæta öryggisráðstöfunum. Áformin má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst næstkomandi.