Brugðist við margvíslegri vanrækslu og illri meðferð

Stjórnvaldsákvarðanir Matvælastofnunar í dýravelferðarmálum í maí, júní og júlí 2025.

Myndin er tekin í Húsdýragarðinum og tengist ekki efni fréttarinnar beint. Mynd: ÓKÁ

Matvælastofnun (MAST) hefur birt lista yfir 12 dýravelferðarmál sem sem brugðist var við með stjórnvaldsákvörðunum í sumar.

Hæsta sektin hljóðar upp á 330 þúsund krónur. Hún var lögð á einstakling í suðvesturkjördæmid sem notaði „hengingaraðferð“ við tamningu á folaldi.

Fleiri sektir

Næsthæsta sektin, 260 þúsund krónur, var lögð á bónda í norðausturumdæmi, sem hafði látið flytja kú til sláturhúss á Akureyri fimm dögum eftir burð. Kýrin drapst á leiðinni, en stofnunin segir að bóndanum hefði átt að vera ljóst að kýrin var ekki flutningshæf vegna einkenna sem hún sýndi.

Þriðja hæsta sektin, upp á 225 þúsund krónur, var lögð á eftir að bóndi í norðvesturumdæmi varð uppvís af því að vænrækja að kalla til dýralækni, eða alífa kú sem fannst illa farin í fjósi. Skepnan var aflífuð að kröfu MAST.

Þá fannst í öðru tilviki fótbrotin kvíga í fjárhúshlöðu við eftirlit hjá bónda í suðvesturumdæmi. Hún hafði verið brotin í tvo til þrjá daga áður en eftirlitsmenn bar að garði.

„Ekki hafði verið kallaður til dýralæknir. Kvígan var aflífuð að kröfu MAST og lögð stjórnvaldssekt á bóndann að upphæð 210.000 kr. Einnig voru lagðar á hann dagsektir að upphæð 15.000 kr. á dag til að knýja á um bætta dýravelferð í búskapnum.“

Dagsektir lagðar á

Þá kemur fram í samantekt stofnunarinnar að dagsektir hafi verið lagðar á í þremur tilvikum í sumar.

Lagðar voru á dagsektir að upphæð 10 þúsund krónur á dag á bónda í norðausturumdæmi til að knýja á um úrbætur á velferð sauðfjár og hrossa.

Sama upphæð dagsekta var lögð á bónda í suðausturumdæmi.

„Örmerkingum hrossa, hunda og katta á bænum var ábótavant og hjarðbók fyrir sauðfé óuppfærð. Sjúkdóma- og lyfjaskráningar fyrir sauðfé og hross voru einnig ófullnægjandi og almenn meðferð og umhirða hunda á bænum ekki í lagi.“

Þá kemur fram að í apríl hafi Matvælastofnun stöðvað rekstur hestaleigu í suðausturumdæmi vegna brota á dýravelferð en rekstraraðilinn hafi haldið áfram rekstrinum.

Til að knýja á um lokun hestaleigunnar og bæta úr velferð hrossanna voru lagðar á hestaleiguna dagsektir að upphæð 10 þúsund krónur á dag.

Ekki kemur fram hvort að þeir sem beittir voru dagsektum hafi brugðist við og farið að tilmælum stofnunarinnar.

Vörslusviptingu beitt

Þá eru fimm tilkvik þar sem eigendur voru sviptir gæludýrum sínum. Einn kattareigandi í suðvesturumdæmi var sviptur tveimur köttum vegna ófullnægjandi dýravelferðar og annar í sama umdæmi þremur köttum sem hann hélt í búri á svölum á heimili sínu við ófullnægjandi aðstæður.

Sömuleiðis kemur fram að hundeigandi í norðausturumdæmi hafi verið sviptur umráðum hundsins, en hann hafði vanrækt að fara með hann til dýralæknis sem bitnaði á velferð dýrsins. Hundurinn var aflífaður að kröfu MAST.

Í öðru tilviki kom í ljós við heimsókn lögreglu á heimili í suðvesturumdæmi að ástandið þar var ekki gæludýrum bjóðandi.

„Lögreglan fjarlægði dýrin í samráði við MAST. Formleg vörslusvipting fylgdi í kjölfarið,“ segir í samantekt MAST.

Að lokum segir frá hundeiganda í norðausturumdæmi sem var sviptur vörslu dýrs síns.

„Eigandinn hafði verið fjarverandi í fjóra daga án þess að sjá til þess að hundurinn fengi umönnun, fóður og vatn. Nágrannar brugðust óbeðnir við og sinntu hundinum en ástandið á heimilinu var metið óviðunandi.“

Samantekt MAST má lesa á vef stofnunarinnar.