Dómsmálaráðherra ætlar á næstunni að kynna tillögur um samræmingu reglna við Norðurlöndin hvað varðar dvalarleyfi á Íslandi. Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í nýrri aðsendri grein á Vísi. Þá boðar hún að gjöld fyrir dvalarleyfi verði hækkuð til samræmis við Norðurlöndin og reglur endurskoðaðar.
Í greininni segir hún að nú fari í fyrsta sinn fram í dómsmálaráðuneytinu ítarleg greining á stöðu dvalarleyfa hér á landi. Fyrstu niðurstöður bendi til að skrifa megi mikla fólksfjölgun síðustu ára á stefnuleysi í málaflokknum.

„Íbúum Íslands hefur fjölgað um rúmlega 50.000 frá 2017. Hlutfallsleg fjölgun hefur verið um fimmtánföld á við Evrópumeðaltal og nær fjórföld á við hin Norðurlöndin. Um 2/3 hlutar af þessari miklu fjölgun hefur verið borin uppi af erlendum ríkisborgurum,“ bendir hún á.
Vöxturinn segir hún að hafi verið meiri en innviðir og velferð þoli.
„Stjórnvöld hafa veitt hlutfallslega fleiri dvalarleyfi en aðrar Norðurlandaþjóðir síðustu ár án þess að spyrja gagnrýnna spurninga um samfélagsleg áhrif. Án þess að skoða áhrif á húsnæðismarkað og þrýsting á þjónustukerfi. Afleiðing þessa er álag sem skapar togstreitu og spennu í samfélaginu.“
Hún segir svarið hins vegar ekki að loka landinu heldur marka skynsamlega stefnu sem tryggi velferð íbúa landsins til lengri og skemmri tíma.
Dómsmálaráðherra segir pólitíska umræðu um útlendingamál hafa hverfst um kerfi alþjóðlegrar verndar meðan minna hafi verið rætt um dvalarleyfakerfið sem sé grundvöllur búsetu fólks utan EES-svæðisins á Íslandi. Á grundvelli þess kerfis sé um það bil fjórðungur af fólksflutningum hingað til lands.
„Skilyrði fyrir mörgum tegundum dvalarleyfa eru áberandi minni en á Norðurlöndum. Kerfið er því opnara sem hefur ýmsar afleiðingar í för með sér. Ein þeirra er að hætta á misnotkun. Nýleg mansalsrannsókn bendir raunar til að þolendur hafi staðið veikt við komu til landsins og fengið dvalarleyfi á hæpnum forsendum,“ segir ráðherra.
Þorbjörg Sigríður bendir á fordæmi Noregs, þar stóraukin aðsókn í dvalarleyfi hafi leitt af sér stefnubreytingu.
„Stefna þeirra byggir nú á að laða til landsins fólk með færni, menntun og vilja til þátttöku í samfélaginu.“
Hún segir Ísland ekki eiga að vera „útsöluland í samanburði Norðurlandanna“ og talar fyrir heildstæðri skoðun á kerfi útlendingamála.
Í haust verði aftur lagt fram frumvarp til útlendingalaga þar sem séríslenskar reglur verði afnumdar.
„Þar á meðal hin svokallaða 18 mánaða regla sem nú veitir fólki sjálfkrafa dvalarleyfi ef umsóknartími hefur dregist umfram 18 mánaði. Í frumvarpinu er jafnframt ákvæði um afturköllun alþjóðlegrar verndar þegar menn hafa brotið alvarlega gegn lögum. Í því felast heilbrigð skilaboð um kröfur til fólks sem hingað flyst.“
Samhliða verði lagt fram frumvarp um brottfararstöð og greiningarstöð á landamærunum. Þá sé unnið að samræmingu reglna um dvalarleyfi á við það sem gerist á Norðurlöndum.
Alla grein dómsmálaráðherra má nálgast á vef Vísis.