Í lok annars ársfjórðungs 2025 bjuggu 391.810 manns á Íslandi, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á fjórðungnum fjölgaði landsmönnum um 1.810.

Af heildarfjöldanum eru 200.660 karlar, 190.950 konur og þau sem eru kynsegin eða skilgreina sig með öðrum hætti 200.
„Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 250.400 manns en 141.410 utan þess. Erlendir ríkisborgarar voru 68.980 eða 17,6% af heildarmannfjöldanum,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Fram kemur að á öðrum ársfjórðungi þessa árs hafi 1.100 börn fæðst, en 600 einstaklingar látist.
