Friðlýsing Grafarvogs kynnt í átta vikur

Gert er ráð fyrir að Náttúruverndarstofnun, í samráði við Reykjavíkurborg, búi til fræðsluefni um væntanlegt friðland í Grafarvogi þar sem meðal annars verði fjallað um verndargildi og sérstöðu svæðisins og gildandi umgengnisreglur.

Grafarvogur
Mynd af vef Umhverfisverndarstofnunar þar sem búið er að fella inn mynd sem sýnir með rauðum hring friðlýst svæði Grafarvogs í Reykjavík. Mynd/Samsett

Tillaga að friðlýsingu Grafarvogs sem friðlands hefur verið lögð fram til kynningar. Í tilkynningu Náttúruverndarstofnunar kemur fram að lög kveði á um sex vikna kynningartíma, en í ljósi þess að sumarleyfi séu að ganga í garð hafi frestur til að gera athugasemdir verið framlengdur í átta vikur.

Friðlýsingin er sögð í samræmi við 49. grein laga um náttúruvernd sem samsvari alþjóðlegum verndarflokki IV hjá Alþjóðanáttúruverndarsambandinu, IUCN.

Í auglýsingu um friðlýsinguna segir að svæðið sem liggi innan Reykjavíkur, hafi hátt verndargildi sem felist einkum í víðáttumiklum og lítt röskuðum leirum.

„Svæðið er mikilvægur viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla og fóstrar ríkulegt fuglalíf allt árið um kring, þ.á.m. ábyrgðartegundir fugla. Grafarvogur er einnig vinsælt útivistarsvæði sem er aðgengilegt til náttúruupplifunar, fuglaskoðunar og fræðslu.“

Markmið friðlýsingar Grafarvogs er sagt að viðhalda og vernda til framtíðar náttúrulegt ástand mikilvægs búsvæðis fugla og sjávarhryggleysingja auk líffræðilegrar fjölbreytni svæðisins, þannig að það fái þróast á eigin forsendum. Friðlýsingin miði einnig að því að treysta rannsókna-, fræðslu- og upplifunargildi svæðisins.

Á vef Náttúruverndarstofnunarinnar kemur fram að friðlýsingin hafi verið unnin af samstarfshópi, en í honum sitji, ásamt fulltrúum stofnunarinnar, fulltrúar Reykjavíkurborgar, sem séu hvort tveggja landeigendur og fari með skipulagsvald á svæðinu. 

Á vef stofnunarinnar er að finna hlekk í drög að friðlýsingarskilmálum fyrir Grafarvog og tillögu sem sýnir á mynd mörk hins friðlýsta svæðis.