Samstarf Íslands og Póllands um jarðhita hefur styrkst með Geothermal Synergy verkefninu sem lauk nýverið, að því er fram kemur á vef Umhverfis- og orkustofnunar.
„Þökk sé þessu samstarfi hefur Póllandi tekist að auka þjálfun sérfræðinga og auka hæfni á sviði jarðhitanýtingar – sérstaklega meðal sveitarstjórna – og hvetja til aukinna fjárfestinga í þessum endurnýjanlega orkugjafa,“ er haft eftir Krzysztof Galos, aðstoðarráðherra loftslags- og umhverfismála Póllands.
Á meðal hápunkta verkefnisins eru sagðir hafa verið kynningarfundur og vefnámskeið, ráðstefna í Rúmeníu, lokaráðstefna og námsferð pólskrar sendinefndar til Íslands í febrúar 2025.
„Þar tóku þátt fulltrúar frá loftslags- og umhverfisráðuneyti Póllands, MEERI PAS og sveitarfélagasamtökum. Meginmarkmið ferðarinnar var að skoða hvernig Ísland hefur nýtt jarðvarma til að tryggja orkuöryggi og sjálfbærni og ræða möguleika Póllands á þátttöku í evrópska rannsóknarsamstarfinu GEOTHERMICA.“
Fram kemur að á dagskrá Íslandsheimsóknarinnar hafi verið fundir með utanríkisráðuneytinu, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og Umhverfis- og orkustofnun. Á öllum stöðum hafi sjónum verið beint að áframhaldandi samstarfi.
„Samvinna landanna á sviði jarðhita á sér langa sögu. Pólskir nemendur hafa stundað nám í jarðhitavísindum á Íslandi frá því á tíunda áratugnum og fjölmörg sameiginleg verkefni hafa verið unnin á síðustu árum, meðal annars í gegnum EES-styrkjaáætlunina,“ segir á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Ítarlega samantekt á Geothermal Synergy verkefninu og öðrum samstarfsverkefnum Póllands og Íslands á seinustu árum má finna í PDF-skjali á vef stofnunarinnar.