Króatía er ekki lengur á lista yfir lönd sem talin eru áhættusöm og ósamvinnuþýð í tengslum við aðgerðir gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingarvopna. Á listann hafa hins vegar bæst Bólivía og Bresku Jómfrúreyjar.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært listann yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, líkt og fram kemur á vef Seðlabankans.
„Á listanum er annars vegar um að ræða ríki sem Alþjóðlegi fjármálaaðgerðahópurinn (e. Financial Action Task Force, FATF) hefur tilgreint sem áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 448/2024 um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020,“ segir þar.
Ríkin sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð eru:
- Afganistan
- Algería
- Alþýðulýðveldið Kórea
- Angóla
- Barbados
- Bólivía
- Bresku Jómfrúaeyjar
- Búlgaría
- Búrkína Fasó
- Filippseyjar
- Fílabeinsströndin
- Gíbraltar
- Haítí
- Íran
- Jamaíka
- Jemen
- Kamerún
- Kenía
- Laos
- Líbanon
- Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
- Malí
- Mjanmar/Búrma
- Mónakó
- Mósambík
- Namibía
- Nepal
- Nígería
- Panama
- Sameinuðu arabísku furstadæmin
- Senegal
- Suður Afríka
- Suður-Súdan
- Sýrland
- Tansanía
- Trinidad og Tóbagó
- Úganda
- Vanúatú
- Venesúela
- Víetnam
FATF eru alþjóðleg samtök sem meðal annars hafa að markmiði að setja tilmæli vegna aðgerða gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingarvopna. Meðal verkefna samtakanna er að tilgreina ríki sem teljast áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð, en í því efni vísar Seðlabankinn á nánari upplýsingar á heimasíðu FATF.