Innritun allra nýnema úr grunnskóla í framhaldsskóla hefur gengið vonum framar og er nú lokið, að því er fram kemur í frétt Mennta- og barnamálaráðuneytisins.
„Með samstilltu átaki framhaldsskóla og yfirvalda hefur tekist að ljúka innritun fyrr en undanfarin ár. 5.131 nýnemar sóttu um innritun í framhaldsskóla í ár eða 554 fleiri en í fyrra,“ segir á vef ráðuneytisins.
Nemendur þurfa að velja að minnsta kosti tvo skóla í umsókn sinni um nám í framhaldsskóla, en hafa einnig kost á að velja þrjá.
„4.136 nemendur fengu pláss í þeim skóla sem þeir völdu í fyrsta vali, 669 í öðru vali og 204 í þriðja vali. Þá fengu 122 nemendur úthlutað plássi í skóla sem þeir völdu ekki sérstaklega en sem er með laus pláss.“
Hlutfallið er sagt lægra en undanfarin ár, en í ár hafi í fyrsta sinn verið gefinn kostur á að velja þrjá skóla í stað tveggja.
Fram kemur að tekin hafi verið í notkun ný innritunargátt á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við Stafrænt Ísland. Hún hafi bætt til muna þjónustu við umsækjendur og öryggi í umsóknarferlinu.