Tekjur af erlendum ferðamönnum á fyrsta ársfjórðungi 2025 námu 108,5 milljörðum króna samanborið við 103,8 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2024, samkvæmt nýbirtri samantekt Hagstofu Íslands. Aukningin nemur 4,5 prósentum sem er rétt yfir 4,2 prósenta verðbólgu á sama tímabili.
„Á 12 mánaða tímabili frá apríl 2024 til mars 2025 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 623,8 milljarðar króna samanborið við 612,9 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar.
Fram kemur að eitt prósent samdáttur hafi orðið á tímabilinu hvað varðar fjölda þeirra sem starfa í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi, en í apríl síðastlinum störfuðu 29.741 í geiranum.
„Á tólf mánaða tímabili frá maí 2024 til apríl 2025 störfuðu að jafnaði um 31.407 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.721 fyrir sama tímabil frá árinu áður.“
Þá kemur fram í samantektinni að gistinætur á hótelum í apríl á þessu ári hafi verið 369.411 samanborið við 331.880 í apríl 2024. Þá hafi brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í maí verið 226.257 samanborið við 210.872 í maí 2024.
„Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 159.384 samanborið við 157.366 í maí 2024.“
Athygli vekur í tölum um flugumferð sú mikla aukning sem varð í ferðalögum Íslendinga, en fjórðungi fleiri Íslendingar áttu leið um Keflavíkurflugvöll í maí síðatliðnum en gerðu í maí 2024.

Frekari greiningu á tölum tengdum ferðaþjónustu, svo sem um breytingar á umferð á þjóðvegum landsins, er að finna í skammtímahagvísum Hagstofunnar.