Undirrituð hefur verið samstarfsyfirlýsing opinberra stofnana um samstarf gegn skipulagðri brotastarfsemi sem beinist gegn hinu opinbera.
Á vef lögreglunnar kemur fram að markmið samstarfsins sé að efla mótstöðu samfélagsins gegn slíkum brotum og draga úr þeim veikleikum sem glæpasamtök kunni að nýta sér.
„Þær stofnanir sem standa að samráðsvettvangnum eru; Auðkenni, Fjársýslan, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Skatturinn, Stafrænt Ísland, Tryggingastofnun, Vinnueftirlitið, Vinnumálastofnun, Útlendingastofnun, Þjóðskrá, héraðssaksóknari og ríkislögreglustjóri,“ segir í fréttinni.
Þar kemur jafnframt fram að skilvirkar forvarnir, aukin þjálfun og fræðsla, betri gæði auðkenningar og hröð og áreiðanleg upplýsingamiðlun séu liður í því að efla mótstöðu samfélagsins gegn skipulagðri brotastarfsemi sem beinist gegn hinu opinbera.
„Unnið verður að því að efla enn frekar samvinnu milli ríkisstofnana og annarra lykilaðila á borð við sveitarfélög, atvinnulíf og samfélagsins alls.“
Hópurinn verður kallaður saman að lágmarki þrisvar á ári þar sem farið verið yfir framgang verkefna og áherslur mótaðar. Þess á milli starfi í umboði stofnananna framkvæmdateymi sem tilnefnt sé í.
„Fast sæti í teyminu eiga fulltrúar ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara og hefur teymið það hlutverk að vera leiðandi í þróun samstarfsins, taka ákvarðanir um áhersluverkefni, leiða umræður á samráðsfundum og útbúa aðgerðaráætlun. Ríkislögreglustjóri boðar samstarfsfundi samstarfsaðila, leiðir framkvæmdateymi og boðar fundi þess.“
Samstarfið er sagt ná til næstu fjögurra ára.