Engar vísbendingar um flutning orkusölu milli hópa

Myndin er flóknari en svo að kenna megi stórnotendum um hækkanir á orkuverði til annarra hópa.

Sogið
Sogið Mynd: Landsvirkjun

Engar vísbendingar eru um tilfærslu orkusölu á milli almennra notenda og stórnotenda raforku líkt og haldið hefur verið fram í umræðum um orkumál síðustu ár.

Umhverfis- og orkustofnun kynnti í dag viðamikla úttekt sem búið er að gera á þróun raforkuverðs hér á landi og orsökum hækkana, sem að stórum hluta skýrast af aukinni eftirspurn, orkuskiptunum og lágri lágri stöðu miðlunarlóna vatnsaflsvirkjana Landsvirkjunar.

Fram kom í máli Hönnu Bjargar Konráðsdóttur, sviðsstjóra Raforkueftirlitsins, þegar hún kynnti helstu niðurstöður, að vegna bættrar stöðu miðlunarlóna þá hafi raforkverð í maí lækkað um fimmtung frá því sem það var í vetur. Áhrif stöðu miðlunarlónanna eru því allnokkur.

Hanna Björg Konráðsdóttir, sviðsstjóri Raforkueftirlitsins.
Úr kynningu Hönnu Bjargar Konráðsdóttur, sviðsstjóra Raforkueftirlitsins.

Kostnaðarauki heimila 11% frá 2020

Á föstu verðlagi, þegar búið er að leiðrétta fyrir áhrif verðbólgu, hefur raforkukostnaður heimila aukist um 11 prósent frá árinu 2020, raforkukostnaður álvera um 25 prósent og raforkukostnaður gagnavera um 54%.

Hann Björg sagði verðið ráðast af samspili framboðs og eftirspurnar. Eftirspurn hafi aukist á tímabilinu vegna nýrra notenda og vegna orkuskipta á sama tíma og staða miðlunarlóna Landsvirkjunar hafi verið lág, sem hafi valdið reglulegum skerðingum frá árinu 2021.

Ástæður hækkana á raforkuverði eru greindar ítarlega í skýrslunni, en Hanna Björg fór í kynningu sinni sérstaklega yfir hvort orkufyrirtæki hafi fært sölu á milli hópa, svo sem frá almennum notendum til stórnotenda á borð við álver og gagnaver.

„Almennt má segja að stórnotendur eru að nýta sína samninga vel og eru almennt innan samningsmarka. Og við greininguna komu engar skýrar vísbendingar fram um að tilfærsla milli notendahópa, frá almennum notendum til stórnotenda hefði átt sér stað,“ segir hún.

Þvert á móti hafi niðurstöðurnar bent til þess að stórnotendur nýti samanlagðar heimildir sínar til samninga um orkukaup innan ramma gildandi laga og reglna.

„Því má segja að þessi mýta, eða umræða, um tilfærslu milli notendahópa, virðist samkvæmt greiningu raforkueftirlitsins ekki eiga sér stoð.“

Stóra myndin óbreytt að sögn ráðherra

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flutti erindi áður en ráðist var í kynningu á efni skýrslunnar og sagði hana hafa orðið viðameiri en hann hefði í fyrstu órað fyrir að gæti orðið.

Jóhann Páll Jóhannsson
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- og orku- og loftslagsráðherra, á kynningarfundi um nýja skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar.

Hann sagði fagnaðarefni að þótt raforkuverð hafi hækkað að undanförnu þá hafa stóra myndin ekki breyst, að hér hafi raforkuverð til heimila haldist miklu lægra en í löndunum í kring.

„Á árunum 2020 til 2025 hefur raforkukostnaður dæmigerðs heimilis á föstu verðlagi hækkað um innan við 0,1 prósent af tekjum. Og verð raforku hefur hér verið um 40 prósentum lægra heldur en raforkuverð að jafnaði í Evrópu,“ sagði hann.

Jóhann Páll sagði ætlunina að halda þessari stöðu, en það kallaði bæði á aukið framboð á raforku á næstu árum og kraftmeiri uppbyggingu flutningskerfis raforku.

„Þess vegna vinnum við núna hörðum höndum að því að stytta afgreiðslutíma og auka málshraða í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála, bæði með laga- og reglugerðarbreytingum, en líka með breyttum verkferlum hjá Umhverfis- og orkustofnun sem getur núna að jafnaði afgreitt mál 50 prósentum hraðar heldur en áður tíðkaðist.

„Og hér eru starfsmenn stofnunarinnar að vinna algert kraftaverk,“ sagði ráðherra.

Sjá einnig umfjöllun Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.