Vilja efla tvíhliða varnarsamstarf enn frekar

Fulltrúar franskra stjórnvalda heimsóttu varnarsvæðið og ræddu samstarf Íslands og Frakklands á sviði öryggis- og varnarmála.

Frá heimsókn sendinefndar Frakklands á varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Sendinefnd Frakklands ásamt fulltrúum varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Marvini Ingólfssyni aðstoðarframkvæmdastjóra varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar. Mynd/Utanríkisráðuneytið

Skrifað hefur verið undir yfirlýsingu um vilja íslenskra og franskra stjórnvalda til að efla enn frekar tvíhliða varnarsamstarf ríkjanna.

Undirritunin fór fram í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn, en undir yfirlýsinguna rituðu, fyrir hönd ríkjanna, Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Alexandre Escorcia, skrifstofustjóri málefna Evrópu, Norður-Ameríku og fjölþjóðasamstarfs hjá varnarmálaráðuneyti Frakklands.

Í frétt utanríkisráðuneytisins kemur jafnframt fram að fram hafi farið tvíhliða samráð ríkjanna um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála, þar sem öryggisáskoranir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og aukið tvíhliða varnarsamstarf ríkjanna hafi verið til umræðu.

Alexandre Escorcia og Jónas G. Allansson.
Alexandre Escorcia, skrifstofustjóri málefna Evrópu, Norður-Ameríku og fjölþjóðasamstarfs hjá varnarmálaráðuneyti Frakklands, og Jónas G. Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, að lokinni undirskrift. Mynd/Utanríkisráðuneytið

„Þá voru málefni Atlantshafsbandalagsins og komandi leiðtogafundur bandalagsins í Haag síðar í mánuðinum sömuleiðis til umræðu sem og stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu landvinningastríði Rússlands,“ segir þar.

Að auki var fulltrúum franskra stjórnvalda boðið í kynningarferð um öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli þar sem aðgerðir Íslands til stuðnings sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins voru kynntar, meðal annars kafbátaeftirlit og loftrýmisgæsla.

„Þá var farið yfir aukna áherslu íslenskra stjórnvalda á öryggis- og varnarmál sem og yfirstandandi vinna við mótun fyrstu öryggis- og varnarmálastefnu Íslands.“