„Frelsi okkar er ófrávíkjanlegur réttur – og við munum aldrei hætta að berjast fyrir honum,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í erindi sínu á mannréttindaráðstefnu World Pride í Washington DC sem fram fór fyrr í þessum mánuði. Hún kom þar fram sem fulltrúi íslenskra stjórnvalda.
Í umfjöllun á vef Stjórnarráðsins kemur fram að í ræðu sinni hafi Hanna Katrín lýst djúpum áhyggjum af neikvæðri þróun í réttindabaráttu hinsegin fólks á heimsvísu og bent á vaxandi áhrif skipulagðra öfgahreyfinga sem ógni sjálfum grundvallargildum lýðræðisins: frelsi, jafnrétti og mannréttindum.
„Réttindi LGBT+ fólks hafa orðið pólitískur gjaldmiðill í höndum popúlistískra stjórnmálamanna. Trans fólk hefur orðið verst úti, en aðrir hópar innan hinsegin samfélagsins standa einnig frammi fyrir árásum,“ sagði hún.
Hanna Katrín lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að verja réttindi hinsegin fólks með skýrum lögum og sagði lagasetningu öflugasta vopnið gegn bakslagi í jafnréttismálum.
Þá fór hún yfir árangur þann sem náðst hefur hér á landi í réttindamálum hinsegin fólks, en í frétt ráðuneytisins er bent á að Ísland sé nú í fyrsta sæti á réttindakorti TGUE (Transgender Europe) annað árið í röð og í þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe.
Þar hafi landið þó fallið um eitt sæti þrátt fyrir að hækka í stigum, en Belgía hafi skotirst fram fyrir Ísland með markvissum lagabreytingum gegn hatursorðræðu. Þá trónir Ísland efst á Spartacus Gay Travel Index yfir áfangastaði LGBT+ ferðalanga.
„Íslensk stjórnvöld munu áfram standa vörð um mannréttindi LGBT+ fólks og halda áfram lagabótum – ekki aðeins til að halda góðri stöðu á mælikvörðum heldur til að leggja sitt af mörkum til betri heims. Utanríkisstefnan verður áfram nýtt til að verja og efla réttindi hinsegin fólks á heimsvísu,“ sagði hún.
Í ræðu sinni sagði Hanna Katrín að árangur Íslands væri fyrst og fremst til kominn vegna skýrrar stefnumótunar stjórnvalda og lagasetningar, meðal annars um jafna meðferð á vinnumarkaði, kynrænt sjálfræði og bann við umbreytingarmeðferðum. Þá hafi fræðslu- og forvarnarstarf aukist, sem og stuðningur við félagasamtök sem vinni að réttindum hinsegin barna og ungmenna.