Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) hafa undirritað samning um áframhaldandi þjónustu á sviði rannsókna, þróunarvinnu og sérhæfðrar ráðgjafar fyrir árin 2025-2027.
Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að markmið samningsins sé að stuðla að öflugum rannsóknum og nýsköpunar- og þróunarstarfsemi á sviði landbúnaðar- og matvælaframleiðslu.
„Atvinnuvegaráðuneytið felur LBHÍ að vinna að verkefnum er varða rannsóknir, þróun og nýsköpun sem miða að því að styrkja megináherslur í landbúnaði samkvæmt landbúnaðarstefnu og öðrum stefnum og áherslum stjórnvalda.“
Samkvæmt samningnum veitir LBHÍ jafnframt stjórnvöldum ráðgjöf á fræðasviði skólans og sinnir eftir atvikum stjórnsýsluverkefnum í umboði atvinnuvegaráðuneytisins, svo sem með setu í stjórn stofnana og þátttöku í vinnu starfshópa.
Þá mun skólinn einnig veita ráðgjöf við vinnslu einstakra verkefna sem tengjast stefnumótun eða öðrum verkefnum á sviði ráðuneytisins, að því er fram kemur í tilkynningunni..
Á meðal verkefna sem landbúnaðarháskólinn kemur til með að vinna að eru rannsóknir á sviði loftslagsmála, nýtingu lífræns áburðar, rannsóknir í þágu lífrænnar framleiðslu og verkefni tengd tæknilausnum í landbúnaði.