Ísland ætlar að vernda vistkerfi í hafi með hliðsjón af alþjóðlegum markmiðum um vernd 30 prósenta hafsvæða fyrir 2030. Þetta kom fram í ræðu Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nice í Frakklandi. Í hafinu umhverfis Ísland væru fjölbreytt og verðmæt vistkerfi, sem þyrfti að vernda; og sem íslensk stjórnvöld ætluðu að vernda.
Í samantekt á vef ráðuneytisins kemur fram að Jóhann Páll hafi bent á að Ísland hafi um langa hríð treyst á leiðsögn vísindanna við stýringu á málefnum hafsins. Sjálfbærni væri höfð að leiðarljósi í stjórn fiskveiða, sem hefði reynst Íslendingum vel.
„Ábyrg fiskveiðistjórnun væri hins vegar ekki nóg ein og sér. Fylgja þyrfti víðtækari vistkerfisnálgun í málefnum hafsins með líffræðilega fjölbreytni í forgrunni.“
Jóhann Páll tók þátt í ráðstefnunni í Nice ásamt sendinefnd frá Íslandi og er sagður hafa tekið þátt í fjölmörgum viðburðum þar, auk þess að flytja aðalræðu Íslands á ráðstefnunni.
Tilgangur Hafráðstefnunnar er sagður að vinna að framgangi Heimsmarkmiðs 14 um vernd lífs í hafi. Síðast var Hafráðstefna S.þ. haldin í Lissabon 2022.
Brýnt að ná alþjóðlegum samningi gegn plastmengun
Ráðherra sagði í ræðu sinni að Ísland legði þunga áherslu á baráttuna gegn mengun hafsins, ekki síst gegn plastmengun.
„Ísland vildi að þjóðir heims næðu að ljúka viðræðum um gerð alþjóðlegs samning um plast og plastmengun á fundi í Genf í ágúst. Samningurinn þyrfti að vera metnaðarfullur og taka á öllum lífsferli plasts.“
Benti hann á að Ísland hefði haldið tvær alþjóðlegar vísindaráðstefnur um plastmengun á Norðurslóðum og myndi bjóða til þriðju ráðstefnunnar árið 2026, sem myndi skoða plastmengun í Atlantshafi. Hvað námavinnslu á úthafinu varðaði, þá þyrfti að gæta fyllstu varúðar.
Jóhann Páll sagði að miklu skipti að mannleg starfsemi á hafi byggi við alþjóðlegan lagaramma. Ísland hefði alltaf haldið fram mikilvægi Hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna sem grundvallar í þeim efnum. Íslensk stjórnvöld væru að vinna að fullgildingu Samnings um vernd líffræðilegrar fjölbreytni í úthafinu (BBNJ).