Skipað í embætti forstjóra ÁTVR

Nýr forstjóri er sagður búa að víðtækri reynslu af stjórnunarstörfum.

Þorgerður Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR. Mynd: Stjórnarráðið/Arnór Trausti

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur í embætti forstjóra ÁTVR.

Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins að Þorgerður hafi verið valin úr hópi umsækjenda um stöðuna, sem auglýst var í apríl síðastliðnum.

Þorgerður Kristín er sögð búa yfir víðtækri reynslu af stjórnunarstörfum á smásölumarkaði og hafa frá árinu 2014 gegnt starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar. Áður starfaði hún í yfir áratug hjá Lyfju hf., sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs og mannauðsstjóri.

Þorgerður er með B.A. og Cand.Psych. gráðu í sálfræði, með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði. Þá hefur hún einnig lokið PMD stjórnendanámi auk fjölmargra námskeiða tengdum stjórnun og stefnumótun.

Þorgerður er skipuð í stöðuna til fimm ára frá 1. september.