Ákvæði sem fellt var úr reglugerð 2016 hefur nú verið tekið upp aftur.
Mynd: Stjórnarráðið
Gerðar hafa verði breytingar á byggingarreglugerð með nýju ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra. Slík bílastæði skulu nú vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær þeim en 25 metrar.
Á vef Stjórnarráðsins er haft eftir Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, að reglugerðin hafi áður leyft framkvæmdaaðilum að setja bílastæði fyrir hreyfihamlaða yst á bílastæðum og sem lengst frá inngangi.
„En ekki lengur,“ segir Inga Sæland.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hún segir nauðsynlegt hafa verið að grípa inn í og breyta reglugerðinni.
„Reglan um 25 metrana gildir alls staðar á Norðurlöndunum og auðvitað á það að vera eins á Íslandi. Gleymum því aldrei að samfélagið okkar er fyrir okkur öll. Til að svo megi verða þurfum við að tryggja aðgengi fyrir alla.“
Ofangreint ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra var fellt brott úr reglugerðinni árið 2016, en hefur nú verið sett inn að nýju, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins.