Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Breyting á kostnað öryggis

Ríkisútvarpið hefur í fréttum (svo sem HÉR og HÉR) fjallað um mál þar sem fólk hefur ekki náð sambandi við neyðarnúmerið 112.

Greint er frá því að verið sé að rannsaka hvað valdi og málið sagt til skoðunar hjá Fjarskiptastofu, Neyðarlínunni og fjarskiptafélögunum.

Púkinn getur hjálpað til og bent þessum aðilum á að málið tengist nær örugglega endanlegri niðurlagningu 3G fjarskiptanetsins um nýliðin mánaðamót.

Hann veit meira að segja um þriggja manna fjölskyldu, foreldra og ungling, sem öll eru sambandslaus við 112 af því að þau notast við algenga og fína snjallsímategun sem nær öllu sambandi öðru en við Neyðarlínuna.

Fjölskyldan fékk þau svör hjá fjarskiptafyrirtæki sínu að framleiðandi símtækjanna stefndi á að keyra uppfærslu í sumar sem myndi laga þetta sambandsleysi.

Þangað til var fólkinu bent á að setja upp hjá sér smáforrit 112, en í gegn um það mætti komast í samband við Neyðarlínu ef á þyrfti að halda.

Vel að merkja fengust þessi svör ekki fyrr en eftir töluverða eftirgrennslan og eftir að búið var að blanda Fjarskiptastofu í samskiptin við símafyrirtækið.

Það verður að segjast að Púkanum þykir ákveðið ábyrgðarleysi af stjórnvöldum að heimila niðurlagningu 3G fjarskiptanetsins áður en búið var að ganga úr skugga um að kæmi ekki niður á öryggi fólks.

Auðvitað hefði átt að gulltryggja að allir kæmust í samband við neyðarþjónustu og að símtengingar utan þéttbýlis yrðu örugglega ekki lakari eftir breytinguna.

En mögulega er það til of mikils ætlast.

Það er hins vegar algjörlega fyrir neðan allar hellur að ekki skuli þá fylgja almennilegar leiðbeiningar um hvaða leiðir séu til úrbóta, aðrar en að kaupa rándýr ný símtæki, sé fólk í þeirri stöðu að ná ekki sambandi við 112.

Púkanum rennur hins vegar blóðið til skyldunnar og finnst borgaraleg skylda sín að benda á að frekari upplýsingar um 112-appið og hlekki til að sækja það sé að finna á vef 112.