Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Framkvæmd kosninga

Nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar fóru heilt yfir vel fram þó að fólk sé eftir atvikum misánægt með niðurstöður, flestir glaðir og sumir vonsviknir.

Líklega eru samt allur fjöldinn ánægður með að þetta sé nú að baki og fólk geti farið að snúa sér að þeim verkum sem standa því næst.

En þeir sem að kosningunum starfa þurfa líka að horfa í baksýnisspegilinn og meta hvernig til tókst við utanumhald kosninganna sjálfra.

Púkinn staldraði við fréttir Akureyri.net og Mbl.is um misritun á nafni frambjóðanda í efsta sæti á lista á Akureyri.  

Frambjóðandi rangfeðraður

Þetta er nefnilega ekki eina dæmið um misritanir á kjörseðlum þessar kosningar.

Í Árborg var á kjörseðli rangt föðurnafn sett á frambjóðanda neðarlega á lista. Mögulega eru dæmin fleiri.

Um er að ræða mistök sem ólíkleg eru til að hafa áhrif á niðurstöður kosninga og eru aðallega leiðinleg fyrir þá frambjóðendur sem fyrir þeim verða.

Mistökin, eftir því sem Púkinn kemst næst, skýrast af vinnulagi kjörnstjórna við uppsetningu kjörseðlanna.

Sá háttur virðist hafður á að skrifa upp nöfn og aðrar upplýsingar og senda svo viðkomandi framboðum til staðfestingar.

Víða var fólk vakandi og gat komið í veg fyrir að villur slæddust á kjörseðla, en ekki alls staðar.

Þar sem villur fóru fram hjá fulltrúum framboða getur hafa verið um einhver flýtisvinnubrögð að ræða, eða hreinlega að fólk hafi ætlað að starfsfólk kjörstjórna kunni að afrita og líma (copy og paste) og þess vegna verið misvakandi í yfirlestrinum.

Rétt gögn afbökuð

Þá gæti einhver jafnvel áætlað, ranglega, að kjörstjórnir í hverju sveitarfélagi myndu styðjast við þjóðskrá þannig að nöfn og kennitölur fari örugglega saman. Því er hins vegar ekki að heilsa.

Það er eitthvað undarlegt við það vinnulag að kjörstjórn fái til sín rétt gögn frá framboðum, skrifi þau svo upp með eigin villum og sendi framboðum til yfirferðar.

Púkinn myndi aldrei ætla kjörstjórnum að setja vísvitandi inn villur til að leggja gildrur fyrir ákveðin framboð, en telur um leið að vinnulagið ætti að vera þannig að útilokaði slíkar bollaleggingar.

Gengur betur næst

Kjörstjórn birtir fyrir kosningar lista allra flokka á vefnum kosningar.is og þar eru nöfn frambjóðenda rétt, bæði í listum og PDF skjölum.

En svo fellur á framkvæmdina þegar kemur að sjálfum kjörseðlinum. Það er ógott.

Vonandi verður búið að hjálpa kjörstjórnum landsins þannig að framkvæmdin geti verið betri næst þegar kemur að listakosningu.

Það yrði að minnsta kosti saga til næsta bæjar ef mistök rötuðu í tiltölulega einfaldan kjörseðil í ágúst komandi.