Skoðun
Stoðir sem skipta máli
Púkinn hafði svolítið gaman af því að renna yfir nýútkomna greiningu Samtaka iðnaðarins á umfangi og áhrifum tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi.
Þarna er geiri sem getið hefur af sér mörg blóm og eflt hagsæld á Íslandi. Á síðasta ári segja samtökin að verðmætasköpun greinarinnar, eða samtala launakostnaðar og hagnaðar, hafi numið ríflega 440 milljörðum króna.
Þá hafi útflutningstekjur greinarinnar verið tæpur fimmtungur að heildarútflutningstekjum Íslands, sem sé meira en sjávarútvegurinn hafi skilað skilaði það ár.
Í gegnum tíðina hefur verið talað um þriðju stoðina og fjórðu stoðina í hagkerfinu, eftir því sem nýjum atvinnuvegum hefur vaxið ásmegin.
Máli skiptir að öllum vegni vel, hvort sem það er á sviði upplýsingatækni og tengdrar þjónustu, lyfjageira, sjávarútvegi, landbúnaði eða ferðaþjónustu. Með styrkum stoðum vegnar öllum vel.
Um þetta eru líklega allir sammála, en svo vandast málið þegar talið berst að leiðum að settu marki.
Púkinn hefur verið þeim megin í lífinu að vilja sem minnstar hindranir og lægsta þröskulda. Og hann grunar að árangur sem hefur náðst hafi verið þrátt fyrir höft á fjármagnsflutninga, fælingarmátt lítils gjaldmiðils.
Spurningin sem þá stendur eftir er hvort hægt hefði verið að gera enn betur. Henni er vandsvarað því það er erfitt að meta tapaðan ávinning af markaðshindrunum, hvaða nafni sem þær nefnast. Blóm sem ekki verða til er ekki heldur hægt að telja.