Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Þegar lygin tröllríður internetinu

Púkinn er stundum hálfvilltur í samtímanum og veit ekki alltaf hverju, eða hverjum á að trúa.

Þarna spilar að hluta inn í þróun og notkun gervigreindar sem tröllríður samfélagsmiðlum með ljósmyndum sem erfitt er að greina að séu fals og líka myndskeiðum sem geta virst afar raunveruleg. Hundar og kettir að bjarga börnum frá bjarndýrum og tígrisdýrum er eitt dæmið um þetta rugl.

Ruslið sem kæfir

Upplifunin er hins vegar að þetta sé dálítið eins og í árdaga tölvupóstnotkunar þegar ruslpósturinn virtist yfirgengilegt vandamál og ruslpóstssíurnar enn þá skrefi á eftir við að sía hann út. Og sannarlega er þetta efni rusl sem tekur bæði pláss og orku við miðlun þess á internetinu.

Svo bætist þessa dagana við stríðsrekstur og markviss áróður og upplýsingaóreiða honum tengdur en þar vita þó þeir sem komnir eru til vits og ára að borgar sig að deila að minnsta kosti með tveimur í það sem sagt er.

Engu að treysta?

Stríðshaukar segja það sem hentar til að geta farið sínu fram. Hvort sem það er einhver lygi um „gjöreyðingarvopn“ í Írak forðum daga, eða nú kjarnorkutilburði í Íran sem ýmist hefur verið eytt eða stafar bein ógn af, eftir því hvernær er talað.

Í þessari orrahríð upplýsingaóreiðu er kannski freistandi að trúa engu, en þá er um leið úti um allan sannleika og misgjörðamenn geta farið sínu fram án þess að þurfa að hafa áhyggjur af umtali, það trúir hvort eð er enginn neinu.

Ritstýrðir miðlar

Þess vegna reynir nú sem aldrei fyrr á ritstýrða fjölmiðla, þar sem fólk hefur fyrir því að sannreyna hlutina og gerir sitt besta til að miðla sögunni af einhverju jafnvægi.

Þar tekst miðlum misvel upp og dæmist sem fyrr hver af verkum sínum. Líklega er samt rétt að taka viljann fyrir verkið því auðvitað geta allir gert mistök eða misstigið sig í fréttaflutningi og jafnvel fallið fyrir fullyrðingum sem síðar kemur í ljós að ekki stóðuðst.

Í umhverfi þar sem lyginni er markvisst haldið að fólki er vissara að horfa til miðla sem þó hafa að markmiði að reyna að segja satt.