Skoðun
Sveita(s)ælan
Uppljóstranir Kveiks um ofbeldi í fósturbarna á sveitabæ á Suðurlandi eru sláandi.
Það er ömurlegt til þess að hugsa að börn sem átti að hjálpa hafi verið færð úr öskunni í eldinn.
Þátturinn varpaði líka ljósi á brotalöm í nærsamfélagi þessa sveitabæjar. Vonandi eru þau sjónarmið á undanhaldi að nota megi vistbörn í þrælavinnu og gera þau þannig út á milli bæja. Að maður tali nú ekki um að þar hafi þau verið útsett fyrir frekari misnotkun.
Þá er augljóst að grunnskólinn sem þó var börnunum líka skjól brást þeim algjörlega, meira að segja þegar einn drengurinn sagði skólastjóranum frá ofbeldinu sem á bænum viðgekkst.
Uppgjör við þessa atburði þarf að ná dýpra en fjallað sé um þá í fréttaskýringarþætti. Fólk þarf að horfast í augu við hvernig það brást þessum börnum og búa verður svo um hnúta að svona lagað geti ekki endurtekið sig.