Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Gleði í myrkasta skammdeginu

Einhver kynni að ætla að púkinn væri ekki jólabarn, en það væri mikill misskilningur.

Jólin eru hátíð ljóss og friðar og verðmæt stund í myrkasta skammdeginu sem mörgum nýtist til hvíldar og samveru með sínum nánustu. Má þá einu gilda hverju fólk trúir.

Hverjum og einum er frjálst að nálgast hátíðina á eigin forsendum.

Þess vegna er púkanum líka alveg sama hvort sagt er „gleðilega hátíð“ eða „gleðileg jól“ og tekur undir allar kveðjur.

Aðalmálið er að allir séu glaðir og öllum líði vel.