Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Spyr sá sem ekki veit

Hvenær er hlaðvarp fjölmiðill? Nú spyr sá sem ekki veit. Púkinn klóraði sér svolítið í kollinum þegar hann sá að Fjölmiðlanefnd reyni þessa dagana að troða upp á hlaðvarp að það sé fjölmiðill.

Aðstandandi þess vill aftur á móti ekkert við það kannast, enda sé hann eigin herra og fari eigin leiðir í miðlun sinni og nálgun á viðfangsefni.

Spurningin sem vaknar er af hverju nefndin er að hlutast til um þetta. Alla jafna eru það væntanlega þeir sem að fjölmiðlun standa sem sækjast eftir því sjálfir að fá þessa skilgreiningu, og halda þá í heiðri þau gildi sem fjölmiðlar hafa í hávegi, að miðla efni með hagsmuni viðtakenda að leiðarljósi, hvort sem ætlunin er að skemmta, fræða eða upplýsa.

Þessum aðilum er akkur í því að fá skráningu og henni fylgir þá væntanlega einhver trúverðugleiki, þó reyndar megi velta því fyrir sér líka, því alla jafna dæmist fólk (og fjölmiðlar) af verkum sínum.

En kjósi nefndin að fara í hart og leggja á sektir vegna vanskráningar fjölmiðils, sem þó vill ekki kannast við það hlutverk, er ljóst að með því er búið að fyrirkoma viðkomandi miðli. Getur það talist form ritskoðunar? Er þá búið að þagga niður í rödd einstaklings, sem annars er ábyrgur orða sinna fyrir lögum eins og hver hannar, með opinberum afskiptum? Þessu má velta fyrir sér.

Fjölmiðlanefnd er ætlað hlutverk í eftirliti með virkni fjölmiðlalaga og söfnun upplýsinga um fjölmiðla, en í fjölmiðlalögum eru fjölmiðlar skilgreindir þannig að þeir séu aðilar eða lögaðilar sem veiti fjölmiðlaþjónustu með reglubundnum hætti.

Þarna virðist heldur mikið rúm til túlkunar. Og endurspeglast það þá í þrýstingi Fjölmiðlanefndar til að fá fyrrnefnt hlaðvarp skráð sem fjölmiðil.

Bæði virðist þetta handahófskennt, enda ekki að sjá að fyrir liggi einhverjar leiðbeiningar um hvenær blogg eða hlaðvörp skuli teljast fjölmiðlar. Bætist þetta gráa svæði við það vald sem nefndin tók sér nýverið til að ákveða hvað teldust auglýsingar í miðluðu efni í miðlum Árvakurs, jafnvel þó að ekki hafi verið um að ræða keypta umfjöllun.

Það er eitthvað óviðkunnalegt við það að eftirlitsaðili geti bara sett fingur í loft til að taka veðrið um ákvarðanir sem þessar og mögulega tilefni til að skoða frekari afmörkun verkefna nefndarinnar og hvernig um þau er fjallað í lögum um fjölmiðla.