Skoðun
Ljósin slökkt?
Einhverju sinni fyrir mörgum árum voru fluttar fréttir af rannsókn í Svíþjóð sem átti að sýna fram á fylgni milli gáfnafars og þess að nota stefnuljós. Í hnotskurn að eftir því sem fólk væri vitlausara væri það ólíklegra til að nota stefnu ljósin.
Á þessum tíma, fyrir einhverjum áratugum síðan, var uppi dálítil umræða um nauðsyn þess að nota stefnuljós og hún dúkkar svo sem upp við og við þegar einhverjum þykir fólk óduglegt við að láta vita hvert það er að fara. Stundum hafa íbúar ákveðinna bæja verið sagðir óduglegir við stefnuljósanotkun, en kannski ekki verið tengt við greindarfar eins og í sænsku rannsókninni.
Og þó, Púkann rámar líka í sögur af einhverjum sem sagður var vilja spara perurnar og gæfi því helst ekki merki.
Núna er það þó önnur ljósanotkun, eða skortur á henni sem virðist strjúka sumum öfugt. Púkinn þekkir til manns sem hefur um árabil þurft að sækja vinnu yfir Hellisheiðina á höfuðborgarsvæðið.
Sá hefur lengi látið fara í taugarnar á sér þegar ökumenn hafa ekki fyrir því að kveikja afturljós bíla sinna, eða gæta ekki að því að dagljósabúnaður bílanna kveiki ekki afturljósin.
Til að stytta sér stundir í daglegum akstri hefur hann tekið upp á því að reyna að telja bíla sem ekki hafa afturljósin kveikt, en rekið sig á að það er enginn hægðarleikur að halda utan um tölur bíla með ljós og hinna sem eru það ekki, í mikilli umferð, misjöfnum birtuskilyrðum og halda um leið athygli á eigin akstri.
Í dagsbirtu sumarsins heldur hann því þó fram að nálægt þriðjuni, jafnvel allt að helmingur bíla á ferð hafi afturljósin slökkt. „Og allt slökkt í kolli ökumanna sem bregðist ekki við því að reynt sé að blikka þá,“ segir hann.
Púkinn hefur eitthvað reynt að malda í móinn og velti fyrir sér hvort þetta væri nú stórmál, svona í dagsbirtunni, en þessi heldur það. „Þessir aular sem ekki kunna á ljós bíla sinna eru nefnilega ekkert að kveikja á perunni þegar skilyrði versna. Á Hellisheiði er ekki óalgengt að sé rigning og þoka og ósýnilegir bílar stórhættulegir,“ segir hann.
Núna þegar haustar telur hann sig hafa dottið niður á leið til að finna út hlutfall þeirra með ljósins slökkt án þess að missa töluna. Lykillinn er að álykta út frá styttri leið og í aðstæðum þar sem sést betur hvort ljósin eru kveikt. Í rigningarsudda rétt fyrir tíu að morgni í þessari viku hafi hann mætt 84 bílum á leið sinni frá efsta hringtorgi við Selfoss að hringtorginu við Hveragerði. Af þeim hafi 78 haft ljósin kveikt og 6 ekki.
Í einhverjum tilvikum kunni dagsljósbúnaðurinn að nema að birta hafi minnkað í rigningunni, en í verri skilyrðum megi þá samt búast við því að rúm sjö prósent „aki eins og aular með ljósin slökkt“.
Púkinn er enn að reyna að gera upp við sig hversu stórt mál þetta sé í raun og sann, en kannski er einhvers átaks þörf til að hjálpa fólki að muna að afturljósin, rétt eins og stefnuljósin áður. En mögulega verður því ekki breytt að ákveðið hlutfall fólks sé bara alltaf með ljósin slökkt …og geti ekki að því gert.