Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Orðanotkun

Fyrir kemur að púkinn veltir fyrir sér orðum og hvernig þau eru notuð. Smellið heiti, eða uppnefni, getur skilið á milli feigs og ófeigs í rökræðum.

Núna, með því að þing hefur verið sett á ný, hefur orðið „kjarnorkuákvæði“ aftur dúkkað upp í umræðunni, eftir kærkomið hlé frá málþófsóráðsíunni sem um skeið ætlaði hér allt að drepa úr leiðindum.

Kjarnorkuákvæði er fremur neikvætt orð og ber með sér yfirbragð gereyðingar. Þannig nýtist það ágætlega þeim sem því beita með því að láta líta út fyrir að eitthvað ógurlega neikvætt hafi átt sé stað með ákvörðuninni um að skera á þann hnút sannarlega var kominn á þingstörfin í sumar.

En af því málalokin snerust um að skera á hnútinn hefði púkanum nú þótt nærtækara að vísa með beinum hætti til Alexanders mikla og sögunnar um Gordíonshnútinn. Gordíonsákvæði kann að vera nær því að lýsa því sem málið snýst um.

En kannski er allt í lagi að sú úrlausn mála að loka fyrir málþóf beri mörg heiti og þá hægt að ráða af notkun þeirra afstöðu þess sem talar til beitingar slíkra meðala.