Skoðun

Púkinn á fjósbitanum
Púkinn á fjósbitanum

Nafn eða vörumerki

Öllum getur orðið á í notkun tungumálsins og ekki ástæða til að gera mikið úr tilfallandi innsláttarvillum og mismælum. En þegar kemur að framsetningu efnis á opinberum vettvangi og ákvörðunum um heiti fyrirtækja þykir Púkanum tilefni til að vanda sig, því framsetningin getur haft áhrif á afstöðu til þess sem að miðluninni stendur.

Þannig hefur Púkinn löngum velt því fyrir sér hvort, meðvitað eða ómeðvitað, síist inn hjá fólki sú tilfinning að aðstandur fyrirtækja sem ekki hafa fyrir því að passa að nöfn þeirra séu rétt fallbeygð í auglýsingum, séu líklegir til að kasta til höndum á öðrum sviðum og þess vegna sé vissara að hafa varann á sér í öllum viðskiptum við þá.

Þegar fyrirtækjaheiti er samsett úr tveimur nöfnum þá eiga bæði að taka beygingu.

Tilbúið dæmi væri „Burðartré hárnet“:

Hér er Burðartré hárnet
um Burðartré hárnet
frá Burðartré hárneti
til Burðartrés hárnets

En þessi tilhneyging til að forðast beygingar á fyrirtækjaheitum virðist algengari en svo að kenna megi kunnáttuleysi einu saman um. Þannig hefur Púkann lengi grunað að þarna sé um að ræða áhrif verslunarfræða sem kennd eru í háskólum og eigi við um erlenda tungu. Þ.e.a.s. að heiti fyrirtækis jafngildi vörumerki þess og eigi þess vegna alltaf að líta eins út.

Að ætla að heimfæra slík fræði upp á tungumál eins og íslensku er í besta falli einfeldningslegt, því það getur ekki verið gott í markaðsfræðinni að meðferð aðstandenda fyrirtækis á heiti þess veki kjánahroll hjá fólki, eða þyki fram úr hófi tilgerðarleg.

Vilji fólk endilega feta þessa slóð og hafa heitið eins í öllum föllum, þá þarf í það minnsta að leggja í þá vinnu að finna nafn sem ekki tekur breytingum. En betra væri að horfast í augu við að starfa á málsvæði þar sem orð fallbeygjast og hætta að synda á móti straumnum.

Púkinn lætur í bili vera að snerta á þáttum eins og því hvort við eigi fleirtala eða eintala í heitum fyrirtækja á borð við Hagkaup, Eimskip eða Samskip, en bendir á að Málið.is er gagnlegur vefur þar sem slá má upp orðum og kalla fram beygingu þeirra.