WestJet og AEGEAN Airlines hefja samstarf við Icelandair

Undirritun samninganna  fór fram á 82. aðalfundi Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA) í Ríó de Janeiro um helgina.

Mynd/Icelandair-samsett

Icelandair undirritaði um helgina samstarfssamning við kanadíska flugfélagið WestJet og viljayfirlýsingu um samstarf við AEGEAN Airlines, stærsta flugfélag Grikklands.

Í tilkynningu Icelandair segir að samstarfssamningarnir komi til með að opna öflugar tengingar á milli leiðakerfa flugfélaganna.

Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðatengsla hjá Icelandair og Michalis Kouveliotis, aðstoðarforstjóri Aegean Airlines. Mynd/Icelandair

„Með samstarfssamningum um sammerkt flug opnast þægilegar tengingar á milli leiðakerfa í einni bókun, með farangur innritaðan alla leið,“ segir þar.

Viðskiptavinir Icelandair komi til með að njóta góðs af leiðakerfi WestJet um Kanada og leiðakerfi AEGEAN um Grikkland.

„Til dæmis á þetta við um tengiflug til Aþenu, Þessalóníki og Krítar í Grikklandi, og Calgary, Winnipeg, Edmonton og Montreal í Kanada.“

Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðatengsla hjá Icelandair og John Weatherill, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs WestJet Group. Mynd/Icelandair

Á móti fái viðskiptavinir AEGEAN aðgang að betri tengingum við Ísland og viðskiptavinir WestJet komi til með að eiga auðveldara með að ferðast til Íslands og áfram með Icelandair um leiðakerfi félagsins í Evrópu.

Undirritun samninganna  fór fram á 82. aðalfundi Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA) í Ríó de Janeiro um helgina.

Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að félagið leggi ríka áherslu á að gera ferðalög einföld og þægileg fyrir viðskiptavini sína.

„Við höfum markvisst verið að fjölga samstarfsflugfélögum í gegnum árin en samningar sem þessir styrkja stoðir félagsins, skapa enn fjölbreyttari ferðamögueika fyrir viðskiptavini okkar og stuðla að mikilvægum tengingum Íslands við umheiminn,“ segir hann.