Fljúga nú til Qaqortoq í stað Narsarsuaq á Grænlandi

Flugtímar til og frá Qaqortoq eru sagðir falla mjög vel að leiðakerfi Icelandair og því skapist öflugar tengingar á milli Suður-Grænlands og áfangastaða Icelandair í Evrópu og Norður-Ameríku, um Keflavíkurflugvöll.

Vél Icelandair boðin velkomin í fyrsta fluginu til Qaqortoq á Suður-Grænlandi.
Flugvél Icelandair boðin velkomin í fyrsta fluginu til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Mynd/Icelandair

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi.

Fram kemur í tilkynningu að þangað verði flogið fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.

Í september verður svo flokið tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum.

„Flugtímar til og frá Qaqortoq falla mjög vel að leiðakerfi Icelandair og því skapast með fluginu öflugar tengingar á milli Suður-Grænlands og áfangastaða Icelandair í Evrópu og Norður-Ameríku, um Keflavíkurflugvöll,“ segir í tilkynningu flugfélagsins.

Flugvöllurinn í Qaqortoq er sagður hafa opnað í byrjun sumars og taka við af Narsarsuaq í leiðakerfi félagsins.

„Nýi flugvöllurinn er nær helsta þéttbýlinu á Suður-Grænlandi, sem styttir ferðatíma og bætir upplifun farþega.“

Haft er eftir Tómasi Ingasyni, framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, að flugfélagið hafi um árabil boðið upp á öflugar tengingar til Suður-Grænlands og sé mjög spennt fyrir því að bæta þjónustuna enn frekar með því að fljúga um þennan glænýja flugvöll.

„Við höfum tekið eftir auknum áhuga viðskiptavina okkar austanhafs og vestan á Grænlandi og það er mjög ánægjulegt að geta gert þeim auðveldara fyrir að ferðast til Grænlands auk þess að efla tengingar Suður-Grænlands við umheiminn,“ segir hann.