Brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum lokað vegna málningarvinnu

Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum.
Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum. Mynd/Skjáskot úr myndbroti Vegagerðarinnar

Vegagerðin varar við því að frá 26. maí næstkomandi til 16. júní verði umferð um brúnna yfir Jökulsá á Fjöllum bara möguleg fjórum sinnum á hverjum sólarhring. Umferðartakmarkanirnar eru til komnar vegna viðhaldsvinnu á brúnni.

„Brúin verður lokuð meðan á framkvæmdum stendur en verður opnuð fyrir umferð fjórum sinnum á dag og á nóttunni,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Ef veður leyfir segir Vegagerðin að standi til að mála brúna á þessu tímabili.

„Sá fyrirvari er gerður að ef ekki viðrar til málningarvinnu mun verkefnið frestast lengra inn í sumarið.“

Fram kemur að unnið verði alla virka daga frá klukkan átta á morgnana til klukkan sjö á kvöldin.

Opið verður fyrir umferð á eftirfarandi tímum dags:

  • 09:45 – 10:15
  • 12:00 – 13:00
  • 14:45 – 15:15
  • 16:45 – 17:15

„Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmu fyrirvara ef aðstæður krefjast.“

Þá segir að upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum verði sett upp við brúna.

„Vegagerðin hvetur vegfarenda til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.“