Á fyrstu fjórum mánuðum ársins fækkaði flugferðum Íslendinga úr landi um rúm 15 prósent á milli ára á meðan fjöldi útlendinga stóð í stað, samkvæmt nýjum tölum Ferðamálastofu.
Fram kemur að brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll hafi numið um 149 þúsundum í nýliðnum aprílmánuði. Í umfjöllun stofnunarinnar kemur að brottfarinar hafi verið álíka margar og í sama mánuði í fyrra.

Fram kemur að Bandaríkjamenn og Bretar hafi samanlagt staðið að baki 41,8 prósentum allra brottfara. Þá hafi brottfarir Íslendinga verið um 53.500 í apríl, 31,3 prósentum, eða nærri þriðjungi, færri en í sama mánuði árið áður.
Samsetning eftir mörkuðum
Tæplega 38 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í apríl, sem sagt er samsvara um fjórðungi allra brottfara erlendra farþega. Bandaríkjamönnum fjölgaði um 11 prósent milli ára.
„Bretar voru næst fjölmennastir, um 24 þúsund talsins (16,4% af heild), sem er 23,2% fjölgun frá fyrra ári. Kínverjar voru þriðja fjölmennasta þjóðernið með um 8 þúsund brottfarir (5,6% af heild), 2,8% færri en í apríl í fyrra.“
Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar (5,0%), Pólverjar (4,5%), Ítalir (4,4%), Frakkar (4,4%), Spánverjar (3,9%), Danir (3,8%) og Kanadamenn (2,5%).
Brottfarir frá áramótum
Þá segir Ferðamálastofa að frá áramótum til aprílloka hafi um 571 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi, álíka margir og á sama tíma í fyrra. Á sama tíma hafi utanlandsferðum Íslendinga fækkað um 15,5 prósent, með 189 þúsund utanlandsferðir í lok apríl.
Ferðamálastofa segir að finna megi nánari skiptingu á milli þjóðerna undir „Gögn/Fjöldi ferðamanna“ á vef stofnunarinnar og sömuleiðis tölur um brottfarir undir liðnum „Farþegar“ í Mælaborði ferðaþjónustunnar.
